Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. júlí 2026 10:38 Sean Dyche fannst ekki gaman að vera með Heiðari Helgusyni í liði á æfingum þegar þeir léku saman hjá Watford. epa/KERIM OKTEN Sean Dyche, fyrrverandi knattspyrnustjóri Burnley, Everton og fleiri liða, segist aldrei hafa spilað með leikmanni sem var jafn slakur á æfingum og Heiðar Helguson.
Dyche var gestur í hlaðvarpinu The Good, The Bad & The Football þar sem gömlu Manchester United-mennirnir Paul Scholes og Nicky Butt fara yfir málin. Í síðasta þætti barst talið að samherjanum sem var slakastur á æfingum. Scholes og Butt nefndu báðir Brian McClair sem lék lengi með United. Dyche nefndi hins vegar Heiðar en þeir léku saman hjá Watford. „Þú myndir ekki muna eftir mínum, eða þú gætir það. Heiðar Helguson, framherji,“ sagði Dyche. Scholes sagðist reyndar muna eftir Heiðari. „Fínn leikmaður. Lágvaxinn en grjótharður, var hann ekki?“ sagði Scholes sem hélt reyndar að Heiðar væri Finni. „Ef þú varst í liði með Heiðari á æfingum vissirðu að þú myndir tapa. Leikur á litlu svæði; við höfum tapað! Það var þannig,“ sagði Dyche og bætti við að fyrrverandi samherji hans hjá Millwall, Tim Cahill, hafi verið sá besti á æfingum. „En Heiðar, ef þú lentir með honum í liði sagðirðu bara: Við gætum allt eins ... Við hrópuðum á stjórann Ray Lewington og vorum bara: Stjóri, þú gætir allt eins blásið þetta af. Við erum með Heiðar, hver er tilgangurinn?“ bætti Dyche við. Heiðar lék fyrst með Watford á árunum 1999-2005 og svo aftur tímabilið 2009-10, þá á láni frá QPR. Heiðar lék einnig með Fulham, Bolton Wanderers og Cardiff City á Englandi en hann var þar síðustu fjórtán ár ferilsins. Heiðar lék alls 96 leiki í ensku úrvalsdeildinni og skoraði 28 mörk. Hann lék einnig fjölda leikja í B-deildinni.
Enski boltinn Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Sjá meira