Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Magnús Jochum Pálsson skrifar 29. júlí 2026 11:54 Glen Hansard lést í mótorhjólaslysi í Dublin. EPA Írski tónlistarmaðurinn Glen Hansard er látinn, 56 ára að aldri, eftir mótorhjólaslys. Hansard var söngvari The Frames og annar helmingur tvíeykisins The Swell Season með hinni tékknesk-íslensku Markétu Irglová en þau léku saman í kvikmyndinni Once og unnu til Óskarsverðlauna fyrir besta frumsamda lag úr henni.
Fjölmiðlar á Írlandi og Bretlandseyjum greina frá andláti hans. Hansard lenti í mótorhjólaslysi um hálf fimm í morgunsárið í Dyflinni í morgun og var úrskurðaður látinn í kjölfarið. Umboðsmennskufyrirtæki Hansard, ATC Management, hefur síðan staðfest tíðindin. „Fjölskylda Glens er miður sín og harmi lostin yfir þessum hræðilega missi og óskar ef næði á þessum gríðarlega erfiða tíma,“ sagði í yfirlýsingu frá fjölskyldu Hansard. Rokkari, leikari og þjóðlagamaður Hansard fæddist í Ballymun-hverfi í Dyflinni árið 1970 og hætti í skóla þegar hann var táningur til að spila tónlist á götum höfuðborgarinnar. Hann stofnaði rokksveitina The Frames árið 1990 ásamt fimm öðrum en hann vakti fyrst athygli þegar hann lék gítarleikarann Outspan Foster í írsku kvikmyndinni The Commitments (1991). Hansard átti farsælan tónlistarferil.EPA The Frames gáfu út átta plötur yfir 25 ára tímabil og nutu töluverðra vinsælda, sérstaklega á Írlandi en einnig víðar um heim. Hansard kom til að mynda til Íslands og tróð upp á Bræðslunni árið 2011. Hansard stofnaði þjóðlagatvíeykið The Swell Season með tékknesku söngkonunni og píanóleikaranum Markétu Irglová (sem flutti síðar til Íslands) árið 2006. Þau gáfu út þrjár plötur saman en eru hvað þekktust fyrir að leika í kvikmyndinni Once (2007) í leikstjórn John Carney. Markéta og Glen léku þar þjóðlagatvíeyki, ekki ósvipað þeim sjálfum, og sömdu alla tónlist myndarinnar. Tvíeykið vann til Óskarsverðlauna fyrir besta frumsamda lag fyrir lagið „Falling Away“ úr myndinni. Hansard átti einnig farsælan sólóferil, gaf út fimm breiðskífur og þó nokkrar stuttskífur, og var virkur í senunni þar til hann lést. Árið 2020 giftist Hansard eiginkonu sinni Maire Saaritsa og árið 2022 eignuðust þau soninn Christy.
Andlát Írland Tónlist Tengdar fréttir Óskarshafi á Bræðslunni Írski Óskarsverðlaunahafinn Glen Hansard, Hjálmar, Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtíðarinnar, Vax og trúbadorinn Svavar Knútur koma fram á tónlistarhátíðinni Bræðslunni í Borgarfirði eystri helgina 22. til 24. júlí. Hansard er meðlimur hljómsveitarinnar The Frames og The Swell Season og lék einnig í kvikmyndinni The Commitments. Hann vann Óskarinn árið 2007 fyrir lagið Falling Slowly úr myndinni Once. Að jafnaði hafa rúmlega 1.000 manns sótt Borgarfjörð eystri heim Bræðsluhelgina sem er ágætis viðbót við íbúafjöldann sem telur um 120 manns. Forsala á Bræðsluna hefst 19. maí á Midi.is. 8. maí 2011 11:00 Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Fleiri fréttir Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Sjá meira
Óskarshafi á Bræðslunni Írski Óskarsverðlaunahafinn Glen Hansard, Hjálmar, Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtíðarinnar, Vax og trúbadorinn Svavar Knútur koma fram á tónlistarhátíðinni Bræðslunni í Borgarfirði eystri helgina 22. til 24. júlí. Hansard er meðlimur hljómsveitarinnar The Frames og The Swell Season og lék einnig í kvikmyndinni The Commitments. Hann vann Óskarinn árið 2007 fyrir lagið Falling Slowly úr myndinni Once. Að jafnaði hafa rúmlega 1.000 manns sótt Borgarfjörð eystri heim Bræðsluhelgina sem er ágætis viðbót við íbúafjöldann sem telur um 120 manns. Forsala á Bræðsluna hefst 19. maí á Midi.is. 8. maí 2011 11:00