Mancini fullur iðrunar: „Var eins og að missa konu lífs míns“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júlí 2026 09:01 Roberto Mancini með ítölsku landsliðstreyjuna eftir að hafa tekið við liðinu í annað sinn. AP/Alfredo Falcone Roberto Mancini baðst afsökunar þegar hann kom fyrst fyrir framan ítalska fjölmiðla eftir að hafa verið endurráðinn til að þjálfa ítalska landsliðið þremur árum eftir að hann yfirgaf sama starf fyrir ábatasaman samning við Sádi-Arabíu. „
Ég biðst innilega afsökunar,“ sagði Mancini og hélt áfram: „Ég elska ítölsku landsliðstreyjuna og þetta var eins og að missa konu lífs míns. Og það þýðir að maður gerði eitthvað sem maður hefði ekki átt að gera. Þannig að ég biðst afsökunar, innilega afsökunar á öllu sem hefur gerst síðustu þrjú ár. Ég ætla að reyna að koma landsliðinu aftur þangað sem það á heima,“ sagði Mancini. Ítalíu mistókst í þriðja sinn í röð að komast á heimsmeistaramótið, sem leiddi til afsagnar Gabriele Gravina, forseta knattspyrnusambandsins, og Gennaro Gattuso þjálfara í apríl, skömmu eftir tap í umspili gegn Bosníu og Hersegóvínu. "Ho sbagliato ad Andare in Arabia e mi dispiace. Fu un errore di comunicazione con Gravina. La sorte mi dà la possibilità di rifarmi: è come quando perdi la donna della tua vita. Spero che giocheremo così bene che i tifosi mi perdoneranno. Sono qui per riportare l’Italia dove… pic.twitter.com/qIPpjd9gJb— La Stampa (@LaStampa) July 29, 2026 Hinn 61 árs gamli Mancini leiddi Ítala til Evrópumeistaratitils árið 2021 en sagði óvænt upp störfum sem þjálfari Ítalíu í ágúst 2023 og tók við landsliði Sádi-Arabíu tveimur vikum síðar. „Þetta var algjörlega mér að kenna,“ sagði Mancini og vísaði til skorts á samskiptum við Gravina á sínum tíma. Fyrsti leikur Mancini eftir endurkomuna verður gegn Belgíu í Þjóðadeildinni þann 25. september á Stadio Olimpico í Róm. Hann var spurður hvers konar viðtökum hann gæti átt von á frá stuðningsmönnum. „Ég geri mér grein fyrir því að sumir verða á móti mér. Ég vona að liðið spili nógu vel til að fólk fyrirgefi mér,“ sagði Mancini. Mancini var fjórði kostur eftir að Carlo Ancelotti og Pep Guardiola höfnuðu starfinu og Andrea Pirlo var hafnað vegna pólitískra ástæðna þökk sé samningi hans við rússneskt veðmálafyrirtæki. Mancini horfir bjartsýnn á leikmannahóp sinn. „Ég held að við séum ekki í svo slæmri stöðu. Á milli miðherja og kantmanna höfum við marga möguleika og ég er líka með marga unga leikmenn sem geta enn bætt sig,“ sagði Mancini. Roberto Mancini è il nuovo Commissario Tecnico della Nazionale 🇮🇹💙#Nazionale #Azzurri #VivoAzzurro pic.twitter.com/PioBpZX6TS— Nazionale Italiana ⭐️⭐️⭐️⭐️ (@Azzurri) July 28, 2026
Ítalski boltinn Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira