Standa með Eygló í martröðinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júlí 2026 08:32 Eygló Fanndal Sturludóttir er þakklát styrktaraðilum sínum sem standa með henni í gegnum meiðslin sem hafa herjað á hana í langan tíma. @eyglo_fanndal Ríkjandi Íþróttamaður ársins hefur enn ekki keppt síðan hún hreppti hnossið hjá Samtökum íþróttafréttamanna fyrir að verða átta mánuðum síðan. Meiðslamartröðin mikla herjar enn á þessa miklu íþróttakonu og þá er gott að eiga gott bakland.
Eygló Fanndal Sturludóttir er líka þakklát fyrir þetta bakland sitt í nýrri færslu á samfélagmiðlum. „Kærar þakkir til bestu styrktaraðila í heimi. Þau hafa stutt mig í gegnum súrt og sætt og halda áfram að trúa á mig og hjálpa mér að láta draum minn rætast. Ég gæti ekki gert þetta án þeirra og ég er þeim ævinlega þakklát,“ skrifaði Eygló og birti lista yfir styrktaraðila sína sem má sjá hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by Eygló Fanndal Sturludóttir (@eyglo_fanndal) Eygló hefur líka sýnt frá endurhæfingu sinni á samfélagsmiðlum og þar var hægt að fylgjast með því þegar hún mátti ekki hafa eitt lóð á stönginni í það að geta farið að bæta við lóðum og þyngja stöngina smám saman. Þetta ferli hefur tekið marga mánuði og án efa reynt gríðarlega andlega á íþróttakonu sem er vön því að taka vel á æfingum sínum. Nú þarf skynsemdin að vera ofar öllu svo hún detti ekki aftur í sama skelfilega far. Eygló missti af heimsmeistaramótinu síðasta haust vegna brjóskloss í baki en þegar hún var að komast aftur á fullt meiddist hún svo aftur í vetur. Hún endaði þá á sjúkrahúsi þar sem leið yfir hana. Eygló hafði rifið brjóskþófa í mjóbaki á æfingu og fór með hraði upp á spítala þar sem hún missti meðvitund þegar hún reyndi að ganga sjálf. „Ég gat hvorki staðið upp né gengið og ég titraði og skalf,“ skrifaði Eygló á sínum tíma í færslu sinni á Instagram. Hún hefur síðan þurft að vera mjög þolinmóð á meðan hún byggir upp bakið á nýjan leik. Eygló Fanndal Sturludóttir með styttuna fyrir að vera kjörin Íþróttamaður ársins 2025.@eyglo_fanndal „Markmiðið hefur verið að gefa brjóskþófanum þann tíma og hvíld sem hann þarf til að gróa áður en álagi er bætt við aftur smám saman. Þetta hefur verið ótrúlega erfitt og hefur reynt á þolinmæði mína og seiglu á þann hátt sem ég hefði aldrei getað ímyndað mér,“ skrifaði Eygló í vor. Vonandi nær Eygló að keppa á ný á meðan hún ríkir sem Íþróttamaður ársins því annars verður hún sá fyrsti í sögunni sem keppir ekki á árinu eftir kjörið. Þessi færsla Eyglóar sýnir þó fyrst og fremst að styrktaraðilarnir standa með Eyglóu í meiðslamartröðinni, sem eykur líkurnar á því að við sjáum hana aftur keppa við þær bestu í ólympískum lyftingum.
Lyftingar Íþróttamaður ársins Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Leik lokið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjá meira