Kolbeinn og félagar komust áfram þrátt fyrir tvö vítaklúður Andri Broddason skrifar 30. júlí 2026 19:10 Kolbeinn byrjaði hjá Göteborg þegar liðið komst áfram í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í framlengdum leik. IFK Gautaborg Kolbeinn Þórðarson var í byrjunarliði IFK Göteborg þegar liðið vann viðureign sína gegn FCI Levadia frá Eistlandi í framlengdum leik í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu. Sænska liðið brenndi af tveimur vítaspyrnum í venjulegum leiktíma en náði að skora tvö mörk í framlengingu til að tryggja sigurinn.
Fyrri leikur liðanna var spilaður í Svíþjóð þar sem FCI Levadia vann 2-1. Eistneska liðið var því með eins marks forystu í viðureigninni þegar liðin mættust í kvöld í seinni leik liðanna. Í lok fyrri hálfleiks fékk Göteborg vítaspyrnu og fór Tobias Heintz á punktinn. Karl Vallner varði vítaspyrnuna og héldu Eistarnir forystu viðureignarinnar í hálfleik þar sem leikurinn var markalaus. Adam Bergmark Wiberg náði að jafna viðureignina fyrir Göteborg með frábæru marki. Göteborg varð sterkari aðilinn í leiknum eftir að hafa jafnað viðureignina og virtist ætla að taka sigurinn. Undir lok leiksins fékk Göteborg aðra vítaspyrnu og sömuleiðis gullið tækifæri til að slá Levadia úr leik. Sam Larsson fór á punktinn í þetta skiptið en aftur varði Karl Vallner í marki Levadia. Rándýrt fyrir Göteborg að klúðra tveimur vítaspyrnum og ljóst að framlengja þurfti leikinn. Á sama tíma var Vallner hetja Levadia og hélt hann þeim í leiknum nánast einn síns liðs. Göteborg náði þó að tryggja sig áfram með tveimur mörkum í framlengingunni. Adam Bergmark Wiberg var aftur á skotskónum og Saidou Alioum bætti við öðru marki skömmu síðar. Maksimillian Skvortsov náði að bæta við sárabótamarki fyrir Levadia í blálokin en lokatölur viðureignarinnar voru 3-4 fyrir Göteborg.
Sambandsdeild Evrópu Íslendingar erlendis Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjá meira