Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 31. júlí 2026 18:01 Snorri með A-flokks aflátsbréf. Aðsend Verslunarmannahelgin er gengin í garð og landsmenn flykkjast um land allt í partíhug. Sumir hafa það í hyggju að ganga aðeins of hratt um gleðinnar dyr en Snorri Ásmundsson listamaður sá sér leik á borði og hefur hafið sölu á aflátsbréfum handa þeim sem vilja baktryggja sig í augum Guðs almáttugs.
Þessu greinir Snorri frá í fréttatilkynningu. Hversdagssyndurunum býðst ekki einum fyrirgefning heldur eru þrír flokkar afláts, eftir því hve fast er tekið á því. „Margir ætla sér að sleppa aðeins fram af sér beislinu og taka hressilega á því um verslunarmannahelgina. Því geta þó fylgt timburmenn, samviskubit, vandræðalegar sögur og jafnvel syndir af ýmsu tagi. En það eru góðar fréttir.“ „Nú geturðu tryggt þér syndafyrirgefningu frá almættinu með aflátsbréfi,“ segir Snorri og titlar sig viðurkenndan mann fyrirgefningar. Ef einhver efaðist um heimild Snorra til útgáfunnar.Aðsend Eins og fyrr segir fást þrjár gerðir aflátsbréfa. Fyrir saklaus mistök býðst C-flokks aflát, fyrir alvarlegri yfirsjónir á borð við ölvun á almannafæri, þjófnað og „öðrum óheppilegum uppátækjum“ býðst B-flokks fyrirgefning. Fyrir þá forsjálustu og/eða grófustu er svo A-flokks aflát. „Fyrir þá sem vilja vera alveg öruggir. Veitir fyrirgefningu fyrir allar syndir, stórar sem smáar – jafnvel þær sem þú átt eftir að fremja,“ segir Snorri. Auk alls þess fyrrgreinda fylgir gulltryggt pláss í himnaríki að hans sögn. „Ekki bíða þar til samviskubitið bankar upp á eftir helgina. Tryggðu þér fyrirgefningu, gott karma og sálarró. Pantaðu aflátsbréf í dag og njóttu verslunarmannahelgarinnar með léttara hjarta!“
Verslunarmannahelgin Mest lesið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Menning Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira