Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Áróra L Davíðsdóttir skrifar 3. ágúst 2026 07:29 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast í miðborginni í nótt en myndin er úr safni. Vísir Einn var handtekinn grunaður um að hafa ráðist á tvo dyraverði í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Hann var með skurð á hendi eftir átökin og fékk aðstoð sjúkraliðs á lögreglustöð.
Er þetta meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um störf gærkvöldsins og næturinnar. Alls séu fjórir vistaðir í fangageymslu. Auk þess hafi annar verið handtekinn í miðbæ Reykjavíkur fyrir brot á lögreglusamþykkt en sparkaði í lögreglumann við vinnslu málsins á vettvangi. Hann hafi látið „mjög illa“ við komu á lögreglustöð og hafi verið vistaður þar í þágu rannsóknar málsins. Þá hafi einn verið handtekinn fyrir innbrot í bíl og hann var fluttur á lögreglustöð ásamt gríðarlegu magni af þýfi af ýmsu tagi sem var handlagt og skráð í kerfi lögreglu. Hann hafi verið illa haldinn af fíkniefnaneyslu en var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar. Við eftirlit með útlendingum var erlendur aðili handtekinn er hann gat gert grein fyrir því hver hann væri. Hann hafi verið fluttur að heimili sínu þar sem hann var krafinn um að framvísa vegabréfi. Einn hafi verið handtekinn fyrir að fara inn í garða fólks, þar sem hann var óviðkomandi. Sá hafi verið í annarlegu ástandi og fluttur á lögreglustöð. Lögregla sinnti almennu eftirliti með umferð og voru sex handteknir fyrir grun um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Þeir hafi verið fluttir á lögreglustöð og lausir að blóðsýnatöku lokinni.
Lögreglumál Reykjavík Næturlíf Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Sjá meira