Sport

Dag­skráin í dag: Breiða­blik keppir í Evrópu og Bestu deildinni

Andri Broddason skrifar
Breiðablik spilar sinn fyrsta leik í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í dag.
Breiðablik spilar sinn fyrsta leik í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í dag. Vilhelm/Vísir

Nú er verslunarmannahelgin liðin hjá og fátt betra þá en að fylgjast með fótbolta í rólegheitum.

Breiðablik mætir FK Aktobe frá Kasakstan í fyrsta leik liðsins í undankeppni Meistaradeildar kvenna. Þetta er fyrsti Evrópuleikur Breiðabliks á tímabilinu en mótherjar þeirra eru með fullt hús stiga í úrvalsdeildinni í Kasakstan.

Ásamt Evrópuleiknum er einn leikur í Bestu deild karla í kvöld þar sem Þór tekur á móti Breiðablik á Akureyri. Þór getur farið upp fyrir FH með sigri en það verður ekki auðvelt að vinna Breiðablik sem hefur ekki tapað í síðustu fjórum leikjum deildarinnar.

Sýn sport Ísland

13:50 - Breiðablik tekur á móti FK Aktobe í undankeppni Meistaradeildar Evrópu.

18:20 - Þór tekur á móti Breiðablik í Bestu deild karla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×