Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 4. ágúst 2026 07:28 Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, kallar eftir öruggari landamærum svo uppákoman í Ceuta endurtaki sig ekki. Vísir/EPA Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins kallar nú eftir samhentu átaki allra Evrópuríkjanna um aukið öryggi á landamærum sambandsins eftir að tugþúsundir flóttamanna streymdu inn á spænska sjálfstjórnarsvæðið Ceuta frá Marokkó.
Ástandið hefur róast nokkuð í Ceuta, sem er lítið svæði við ströndina í Norður-Afríku, gegnt Gíbraltar sem Spánverjar stjórna. Talið er að um 70 þúsund flóttamenn hafi nú snúið aftur til Marokkó en ljóst er að 72 létu lífið í hamaganginum þegar fólkið lagði til sunds til að synda fram hjá landamæragirðingu sem skagaði út í Miðjarðarhafið og aðskilur Ceuta frá Marokkó. Evrópusambandið hefur boðað innanríkisráðherra ESB á sérstakan neyðarfund vegna málsins í dag en Spánverjar hafa verið gagnrýndir nokkuð síðustu daga vegna uppákomunnar, sérstaklega af Ítölum sem tóku Schengen samkomulagið tímabundið úr sambandi gagnvart Spáni vegna málsins. Spánverjar svöruðu fyrir sig og gagnrýndu Ítali mjög, enda er Ceuta ekki hluti af Schengen, þótt Spánn sé það, og því engin þörf á að blanda Schengen samstarfinu inn í málin. Von der Leyen þakkaði þó Pedró Sanchez forsætisráðherra Spánar fyrir skjót viðbrögð við ástandinu í Ceuta en hún segir ljóst að gera verði meira til þess að verja landamærin en hingað til hafi verið gert, sérstaklega á þeim stöðum þar sem mest reynir á.
Flóttamenn Innflytjendamál Evrópusambandið Spánn Tengdar fréttir Knattspyrnukona drukknaði á leið í betra líf Marokkóski knattspyrnuheimurinn syrgir nú unga og efnilega knattspyrnukonu sem var meðal 84 innflytjenda sem drukknuðu við Ceuta. 3. ágúst 2026 09:32 Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Ráðherrar dóms- og innanríkismála aðildarríkja Evrópusambandsins munu funda í gegnum fjarfundabúnað á þriðjudaginn til að ræða þann mikinn fjölda farandsfólks sem gerði tilraun til að komast til spænsku hólmlendunnar Ceuta í vikunni. 1. ágúst 2026 18:53 Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Forsætisráðherra Spánar, Pedro Sanchez, hefur óskað eftir því að boðað verði í skyndi til fundar innanríkisráðherraráðs ESB. Tugþúsundir manna hafa á síðustu dögum synt af stað frá Marokkó yfir í hólmlenduna Ceuta sem er hluti Spánar en staðsett á meginlandi Afríku. 1. ágúst 2026 13:07 Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Ströndin við víggirt landamæri Marokkó og spænsku hólmlendunnar Ceuta er þakin stökum skóm, yfirgefnum flíkum og hringkútum eftir að hátt í sextíu þúsund manns komust yfir þau á einum sólarhring. 31. júlí 2026 22:48 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sjá meira
Knattspyrnukona drukknaði á leið í betra líf Marokkóski knattspyrnuheimurinn syrgir nú unga og efnilega knattspyrnukonu sem var meðal 84 innflytjenda sem drukknuðu við Ceuta. 3. ágúst 2026 09:32
Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Ráðherrar dóms- og innanríkismála aðildarríkja Evrópusambandsins munu funda í gegnum fjarfundabúnað á þriðjudaginn til að ræða þann mikinn fjölda farandsfólks sem gerði tilraun til að komast til spænsku hólmlendunnar Ceuta í vikunni. 1. ágúst 2026 18:53
Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Forsætisráðherra Spánar, Pedro Sanchez, hefur óskað eftir því að boðað verði í skyndi til fundar innanríkisráðherraráðs ESB. Tugþúsundir manna hafa á síðustu dögum synt af stað frá Marokkó yfir í hólmlenduna Ceuta sem er hluti Spánar en staðsett á meginlandi Afríku. 1. ágúst 2026 13:07
Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Ströndin við víggirt landamæri Marokkó og spænsku hólmlendunnar Ceuta er þakin stökum skóm, yfirgefnum flíkum og hringkútum eftir að hátt í sextíu þúsund manns komust yfir þau á einum sólarhring. 31. júlí 2026 22:48