„Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 4. ágúst 2026 12:13 Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar. vísir/einar/aðsend Forstjóri Útlendingastofnunar segir að ákvörðun um brottvísun og endurkomubann áhafnar Bandero, sem hefur ekki farið lönd né strönd síðan á fimmtudag, muni liggja fyrir í þessari viku. Andmælaréttur skipverja er liðinn og er nú unnið að því að ákveða örlög þeirra.
Áhöfn Bandero hefur að mestu verið haldið um borð við Reykjavíkurhöfn síðan Landhelgisgæslan stöðvaði för skipsins á fimmtudagskvöldið eftir að það hafði afskipti af störfum Hvals 9. Aðstoðarlögreglustjóri útilokar ekki að áhöfninni verði gert að sigla Bandero aftur þaðan sem það kom, út fyrir lögsögu Íslands. Nokkrir áhafnarmeðlimir hafa verið færðir í land til yfirheyrslu en lögreglan vinnur nú að því að fara í gegnum öll þau gögn sem voru haldlögð. Þar á meðal eru símar og tölvur en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort farið verði fram á úrskurð dómara til að skoða innihald umræddra raftækja. Einn áhafnarmeðlimur hefur kært ákvörðun lögreglu um að meina skipverjum að fara frá borði en Héraðsdómur Reykjavíkur mun úrskurða í því máli seinna í dag. Áhafnarmeðlimurinn vill meina að ákvörðun lögreglu sé of íþyngjandi. Þetta staðfestir Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðarlögreglustjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. Hann segir það furðulegt af áhöfninni að halda því fram að ekki sé mannsæmandi að dvelja um borð í skipinu eftir að hafa gert það af sjálfsdáðum undanfarnar vikur úti á ballarhafi. „Þau eru sjálfum sér næg og geta sett sig í samband við skipamiðlara og pantað mat um borð,“ segir Ásgeir sem tekur fram að skipverjarnir hafi nú þegar pantað sér mat til að snæða um helgina. „Þau sóttu sjálf um að koma í höfn til að sækja sér matarkost og nú geta þau gert það.“ Hann segir störf lögreglunnar hafa gengið ágætlega hingað til en erfitt hefur verið að fá á hreint frá skipverjum hver á hvern og einn síma sem lögreglan lagði hald á. Hluti áhafnar hafi ekki verið samvinnufús að því leyti sem flæki málin að einhverju leyti. Skipið var úrksurðað óhaffært af Samgöngustofu föstudagskvöldið. Skipaskoðunarmenn stofnunarinnar fóru um borð á föstudaginn. Öllum þeim 21 sem eru um borð var tilkynnt um mögulega brottvísun og endurkomubann á föstudaginn. Skjölin voru á íslensku en túlkur aðstoðaði lögreglu við þýðingu. Þá var lögmaður fyrir hvern og einn áhafnarmeðlim ræstur út á föstudaginn og eru því réttargæslumenn í tugatali. Andmælaréttur skipverja er liðinn. Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, segir að starfsmenn stofnunarinnar hafi unnið hörðum höndum um helgina til að fá niðurstöðu í málið. Nú sé verið að fara yfir gögn frá lögreglunni. „En það sem er þá verið að skoða er bæði hvort það séu forsendur til brottvísunar og svo þarf að skoða, ef svo er, hversu langt endurkomubannið er með tilliti til alvarleika brota. Lögin eru svona með lágmark og hámark og það fer eftir ríkisfangi, eins og þú nefndir þarna í upphafi. Það er munur á því hvort þú ert ríkisborgari EES eða ríkisborgari utan Schengen. Það eru mismunandi skilyrði og þetta er einstaklingsbundið. Kristín Völundardóttir er forstjóri Útlendingastofnunar.vísir Mögulega verður skipverjum gert að yfirgefa landið með því að sigla Bandero út fyrir lögsögu Íslands en lögregla mun ákveða útfærslu brottvísunar ef úr henni verður. „Ég get staðfest að það er búið að senda út allar tilkynningar og frestir eru liðnir, þannig að við áætlum að þetta verði bara á allra næstu dögum. Þetta er einsdæmi hversu mörg mál þetta eru í einu. En við erum nú yfirleitt er fólk hérna á landinu þegar það er grunað um brot eða er í ólögmætri dvöl og kemur til okkar og í öllum tilvikum vinnum við þessi mál hratt,“ segir hún og bætir við að tímasetning málsins sé ekki sú besta enda hafi starfsfólk unnið sleitulaust yfir verslunarmannahelgina. „Það er náttúrulega ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk að þurfa að vera hérna að vinna frá föstudegi og yfir helgina. Það er því miður eðli starfsins í sumum tilvikum.“
Landhelgisgæslan Hvalveiðar Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Fleiri fréttir „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent