Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Lovísa Arnardóttir skrifar 5. ágúst 2026 10:41 Robin Roberts, George Stephanopoulos, Michael Strahan og veðurfræðingurinn Ginger Zee stýra þættinum alla morgna. Vísir/Vilhelm og aðsend Bandaríski sjónvarpsþátturinn Good Morning America í samvinnu við ABC News verður með beina útsendingu frá Bláa lóninu á Íslandi miðvikudaginn 12. ágúst þegar almyrkvi að sólu gengur yfir vestanvert Ísland.
Hátt í 80 þúsund ferðamenn verða á landinu á meðan á almyrkvanum stendur. Almyrkvinn sé lengstur á landi við Látrabjarg, þar sem hann vari 2,13 mínútur. Hann vari í um 2,09 mínútur vestast á Snæfellsnesi og svo um 1,40 vestast á Reykjanesskaga. Á höfuðborgarsvæðinu mun sjást best til almyrkvans á Seltjarnarnesi og verður því lokað fyrir fjölda gatna í bæjarfélaginu. Töluvert af öryggisráðstöfunum verða gerðar á Vestfjörðum vegna almyrkvans þann 12. ágúst næstkomandi. Til að mynda verður veginum um Bolafjall lokað og fari of margir í átt að Látrabjargi verður veginum lokað. Nokkrir mánuðir eru síðan að allt gistipláss á Vestfjörðum seldist upp og er búist við að mikill fjöldi leggi leið sína til Vestfjarða til að sjá almyrkvann. NASA og tónleikar Greint hefur verið frá því í aðdraganda að NASA, bandaríska geimferðastofnunin, ætli að fylgjast með myrkvanum á Íslandi. Á Hellissandi er búið að skipuleggja stóra hátíð, Iceland Eclipse, sem stendur frá 11. til 15. ágúst og á Víðistaðatúni stendur Björk Guðmundsdóttir fyrir tónlistarviðburði. Á vef Stjórnarráðsins segir að það séu sem fyrr tilmæli stjórnvalda að fólk á vestanverðu landinu og suðvesturhorninu reyni að njóta þessa einstæða og sögulega atburðar heima eða í sínu nærumhverfi. Samkvæmt upplýsingum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra má búast við töluverðum umferðarþunga í þrjá daga fyrir atburðinn og tvo daga á eftir. Landhelgisgæslan gerir ráð fyrir að vera með tvær þyrlur og tvær áhafnir til taks í Reykjavík og að þriðja áhöfnin verði tiltæk til að leysa af ef þörf krefur. Þyrlurnar verða í Reykjavík en varðskipið Freyja staðsett úti fyrir Vesturlandi auk þess sem nýir aðgerðarbátar Gæslunnar verða á Snæfellsnesi annars vegar og Suðurnesjum hins vegar til að sinna löggæslu á hafi ef á þarf að halda. Hægt er að nálgast nýjustu upplýsingar um almyrkvann á island.is/almyrkvi.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Bláa lónið Ferðaþjónusta Bandaríkin Fjölmiðlar Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Fleiri fréttir Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Sjá meira