Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Tómas Arnar Þorláksson skrifar 5. ágúst 2026 11:39 Bandero í Sundahöfn. vísir/vilhelm Öllum áhafnarmeðlimum Bandero hefur verið birt ákvörðun um brottvísun og endurkomubann. Þeir eru nú frjálsir ferða sinna innan höfuðborgarsvæðisins en ríkislögreglustjóri vinnur að framkvæmd brottvísunar. Ekki er loku fyrir það skotið að skipverjarnir sigli einfaldlega á brott með Bandero.
Skipverjum Bandero er nú frjálst að yfirgefa skipið sem hefur verið í Sundahöfn frá því á föstudag en sæta tilkynningarskyldu til lögreglu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að heimferða- og fylgdardeild ríkislögreglustjóra muni sjá um framkvæmd brottvísunarinnar en ekki kemur fram hvað verði um skipið Bandero. Hægt er að kæra ákvarðanir um brottvísun til kærunefndar útlendingamála en kæra frestar ekki framkvæmd eftir því sem fram kemur í tilkynningu Útlendingastofnunar. Í skriflegu svari frá embætti ríkislögreglustjóra segir að heimferða- og fylgdardeild barst verkbeiðni fyrir brottvísun hópsins í morgun. Framkvæmd hennar og næstu skref séu nú í skoðun. Ekki verði veittar nánari upplýsingar að svo stöddu. Fyrir þá skipverja sem eru ríkisborgarar utan EES felur ákvörðunin í sér endurkomubann á allt Schengen-svæðið en fyrir EES-borgara takmarkast endurkomubannið við Ísland. Endurkomubann er að lágmarki tvö ár og hefst gildistími þess við brottför. Mögulega verði skipverjarnir fluttir frá landi með flugvél en aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu sagði það ekki útilokað í gær að skipverjum verði fylgt út fyrir lögsögu Íslands um borð Bandero. Þórhildur Elín Elínardóttir, samskiptastjóri Samgöngustofu, staðfestir í samtali við fréttastofu að skipið sé enn kyrrsett eftir hafnarríkiseftirlit á föstudaginn. „Það voru ákveðnir annmarkar sem komu fram í eftirlitinu, meðal annars reyndist ekki unnt að framvísa því sem að heitir alþjóðlegt mælibréf og svo nokkur önnur atriði.“ Þórhildur Elín Elínardóttir, upplýsingafulltrúi Samgöngustofu.Vísir/Einar Mælibréf er lögbundið gagn sem varðar nauðsynleg siglingargögn og skyldubundnar skráningar. Hún segir því ekki loku fyrir það skotið að skipverjar yfirgefi landið með Bandero. „Þegar útgerð skipsins hefur framvísað þeim gögnum sem skylt er að hafa um borð og sýnt fram á að. Skyldur þess séu uppfylltar að þá verður kyrrsetningunni aflétt. Hafnarríkiseftirlitið myndi gera nýja skoðun á skipinu.“
Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Hvalveiðar Samgöngumál Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira