Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. ágúst 2026 17:32 Cesc Fabregas hefur gert frábæra hluti með fótboltalið Como og stuðningsmennirnir eru líka mjög sáttir með hann. EPA/MATTEO BAZZI Afar strangar miðlareglur ítalska félagsins Como hafa vakið athygli en nú hefur forseti félagsins komið fram og útskýrt þær frekar.
Como er komið í hóp sterkustu félaga ítölsku deildarinnar og áhugi á liðinu hefur aukist ár frá ári enda hefur það blómstrað undir stjórn Spánverjans Cesc Fàbregas. Aukinn áhugi og aukið brask með miða hefur kallað á reglubreytingar hjá forráðamönnum félagsins. Mirwan Suwarso, forseti Como, notaði samfélagsmiðla til að skýra afstöðu félagsins og bregðast við áhyggjum stuðningsmanna. Yfirmaður Como tók fyrst fyrir eitt umdeildasta atriðið: skylduna til að mæta á lágmarksfjölda leikja. La Gazzetta dello Sport fjallar um þetta. Samkvæmt fyrri fréttum myndu ársmiðahafar missa miðann sinn ef þeir mættu ekki á þrjá leiki án þess að hafa lögbundna afsökun. „Að uppfylla ekki lágmarksfjölda áskilinna leikja þýðir ekki að ársmiðinn verði afturkallaður á yfirstandandi tímabili. Það þýðir einfaldlega að missa réttinn til að endurnýja ársmiðann fyrir næsta tímabil,“ útskýrði forseti Como. Hann bætti við að sama regla myndi gilda um aðrar nýjar reglugerðir: „Ef við komumst að því að úthlutað sæti er reglulega notað af stuðningsmönnum annarra liða en Como, mun ársmiðahafinn missa réttinn til að endurnýja miðann fyrir næsta tímabil,“ skrifaði Suwarso. Mega ekki mæta í öðrum litum Suwarso fór síðan aftur yfir hina umdeildu reglu um bann við því að klæðast litum andstæðingaliðsins. „Þessi regla gildir um ársmiðahafa. Ársmiðar eru ætlaðir stuðningsmönnum Como. Af hverju að vera ársmiðahafi hjá Como bara til að gefa stuðningsmanni andstæðingaliðsins sætið þitt, þegar svo margir stuðningsmenn Como myndu gjarnan vilja fara á völlinn en finna ekki miða vegna þess að það er oft uppselt á leiki?“ skrifaði Suwarso. Gildir ekki um börn Forsetinn tók þó skýrt fram að þetta ákvæði myndi ekki gilda um börn. „Að sjálfsögðu gildir þessi krafa ekki um börn. Við höfum engan áhuga á að eyðileggja upplifun barns sem vill styðja við hetjurnar sínar, óháð því fyrir hvaða lið þær spila.“ Suwarso fullvissaði einnig um að félagið myndi halda áfram að veita frekari skýringar á næstu dögum. „Við munum halda áfram að skýra þessar reglur og svara algengum spurningum. Markmið okkar er að eyða öllum mögulegum misskilningi og tryggja að allir skilji tilgang þessara ráðstafana: að tryggja að ársmiðar og sæti á Sinigaglia séu fyrir þá sem sannarlega elska Como og vilja styðja liðið,“ skrifaði Suwarso.
Ítalski boltinn Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira