Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Áróra L Davíðsdóttir skrifar 7. ágúst 2026 11:37 Sara Dögg Svanhildardóttir er sviðsstjóri Fræðslu- og upplýsingasviðs ASÍ Vísir/Vilhelm Samkynhneigðir karlar koma langverst út á vinnumarkaði þegar kemur að mismunun launa segir sviðsstjóri Fræðslu- og upplýsingasviðs ASÍ. Samkvæmt skýrslu sem unnin var fyrir ASÍ, BHM og BSRB árið 2023 um málefni hinsegin fólks á vinnumarkaði eru tekjur hinsegin karla þrjátíu prósentum lægri en tekjur gagnkynhneigðra karla á ársgrundvelli. Munur á tekjum hinsegin og gagnkynhneigðra kvenna er hins vegar hverfandi. „
Hún [skýrslan] leggur svolítið á borðið þá línu að goggunarröðin er augljós, í launastrúktúr og í skattaupplýsingum sem voru teknar saman. Þar koma hommar langverst út launalega séð,“ segir Sara Dögg Svanhildardóttir, sviðsstjóri Fræðslu- og upplýsingasviðs ASÍ, en hún var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Í samantekt skýrslunnar segir að tekjur hinsegin fólks séu að jafnaði átján prósentum lægri en gagnkynhneigðs samanburðarhóps. Munurinn nemi þrjátíu prósentum hjá hinsegin körlum í samanburði við gagnkynhneigða karla en gagnkynhneigðir karlar séu langtekjuhæsti hópurinn á vinnumarkaði. Hinsegin fólk leiti í öruggt starfsumhverfi Ástæður fyrir þessu séu margar en meðal annars sæki stór hluti hinsegin fólks í starfsumhverfi sem það telji öruggt. Ungt hinsegin fólk leiti í veitingageirann, „inn í þessi störf sem eru svolítið „safe“ upp á það að gera að þú ert bara innan um alls konar fólk og það er öðruvísi,“ segir Sara Dögg. Fólk hugsi: „Hvar get ég tryggt öryggi mitt í starfi?“ Sjálf sé hún kennari í grunninn en það geti verið mjög viðkvæmt að vera miðpunktur umræðunnar. „Það getur verið mjög viðkvæmt að vera til umræðu, ég myndi ekki bjóða upp á það að vera inni í þessari umræðu núna með kennara sem eru hinsegin að einhverju leyti þegar er verið að tala um hvað er verið að gera börnum í skólum með hinsegin fræðslu sem dæmi. Hvernig áttu að taka á móti því sem kennari?“ Í dag fer fram opinn fundur um stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði í Iðnó klukkan fjögur. Þar fer fram samtal aðila vinnumarkaðarins um áskoranir, bakslag og fordóma á vinnumarkaði. Margt hafi áunnist síðustu ár en mikið hafi verið talað um bakslag í málefnum hinsegin fólks síðastliðin misseri, sérstaklega hvað varðar viðkvæmustu hópa hinsegin samfélagsins. Sara segir málið flókið en orsakist af því að fólki finnist hinsegin fólk ógna normum og gildum samfélagsins. Fólk eigi það til að streitast á móti nýjum veruleika, eins og tilvist trans fólks. „Ef það kemur eitthvað upp sem við máttum ekki við okkur sjálf, þá er alveg magnað hvernig við mörg förum að streitast á móti því eins og það hreinlega komi okkur eitthvað við. Það er kannski það flókna í þessu bakslagi, það er þetta: en mér finnst, má mér ekki bara finnast? Og það er það sem við erum að reyna að taka utan um, hvernig við ætlum að verja tilvist fólks. “
Hinsegin Vinnumarkaður Bítið Bylgjan Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira