Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Freyja Þórisdóttir skrifar 7. ágúst 2026 11:31 Sólmyrkvar eiga sér stað þegar tungl er nýtt. Vísir/Arnar Almyrkvar á sólu eru sjaldgæfir atburðir á hverjum stað á jörðinni, þar sem skugginn fellur aðeins á lítið takmarkað svæði. Fræðilega séð gætu almyrkvar lengst varað í 7 mínútur og 31 sekúndu en venjulega eru þeir ekki lengri en 2-4 mínútur. En hver er munurinn á almyrkva, deildarmyrkva og hringmyrkva? og hvað er eiginlega sólmyrkvi?
Þessi er þriðji í röð fróðleiksmola á Vísi sem munu birtast reglulega næstu vikuna þangað til að almyrkvi fer yfir sólu á sjötta tímanum síðdegis tólfta ágúst næstkomandi. Almyrkvi frá sólu hefur ekki sést á Íslandi í 72 ár en föstudaginn 20. mars 2015 varð deildarmyrkvi hérlendis. Ólíkt myrkvanum sem var árið 2015 Almyrkvi líkt og sá sem verður hægt að sjá frá vestanverðu landinu þann 12. ágúst næstkomandi stafar af því að tunglið byrgir algerlega fyrir sólina svo að ekkert ljós berst frá henni. Kemur þetta fram í svari Sævars Helga Bragasonar, einnig þekktur sem Stjörnu-Sævar, á vef Vísindavefsins við spurningunni „Hvað er sólmyrkvi og hvað varir hann lengi?“. Slíkir myrkvar á sólu eru sjaldgæfir atburðir á hverjum stað á jörðinni en í þeirri fjarlægð sem jörðin er frá tunglinu er alskugginn mjór og þekur því aðeins lítið svæði á jörðinni. Þegar jörðin snýst myndar alskugginn myrkvaslóð eða -rák á yfirborði jarðar, segir jafnframt í svarinu. Ellefu ár eru liðin frá sólmyrkvanum föstudaginn 20. mars 2015, en sá myrkvi var svokallaður deildarmyrkvi. Þá hylur tunglið ekki algjörlega sólina, sólskífan virðist þá vera sigð, vegna tunglsins. Þrír tunglmyrkvar sama árið Þriðja tegund sólmyrkva kallast hringmyrkvi, þá nær alskuggi ekki alveg til jarðar og tunglið virðist of smátt til að hylja sólina algjörlega. Það gerist þegar tunglið er fjærst jörðu á braut sinni en þá meðan á hringmyrkva stendur sést þunnur hringur sólskífunnar umhverfis brún tunglsins. Hringmyrkvar eru aðeins algengari en almyrkvar og geta varað í allt að 12 mínútur og 30 sekúndur. Sólmyrkvinn á Íslandi 31. maí 2003 er af þessari tegund, er fram kemur í svari Sævars. Ólíkt almyrkva er nauðsynlegt að vera með sólmyrkvagleraugu allan tímann sem horft er upp á hring- og deildarmyrkva. Vert er að nefna að til er myrkvi sem heitir tunglmyrkvi en þá gengur tunglið inn í skugga jarðar á sama tíma og jörðin er stödd á milli sólar og tungls. Rétt eins og í sólmyrkva þarf tunglið að vera nýtt svo að niðurröðunin valdi myrkva. Tunglmyrkvar eru talsvert algengari en sólmyrkvar en hér á landi voru þrír myrkvar árið 1982, tveir þeirra sáust frá Reykjavík. Næst sjást þrír myrkvar sama árið frá Íslandi árið 2485. Við höfum þegar snert á því hvers vegna venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst og hverju fólk má búast við ef það rætist úr veðurspá og það verður skýjað þegar almyrkvinn verður.
Geimurinn Tunglið Sólin Almyrkvi 12. ágúst 2026 Tengdar fréttir Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Tilkomumikill hringmyrkvi var sýnilegur á sunnanverðri Suður-Ameríku í gær. Margir komu saman til að sjá sólmyrkvann. 3. október 2024 13:46 Deildarmyrkvi í kvöld Deildarmyrkvi á tungli verður sjáanlegur frá öllu Íslandi í kvöld. Lítill hluti tunglskífunnar mun myrkvast og þá mun líta út eins og biti hafi verið tekinn úr tunglinu. Deildarmyrkvinn nær hámarki rétt eftir klukkan 20.00. 28. október 2023 19:23 Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Sjá meira
Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Tilkomumikill hringmyrkvi var sýnilegur á sunnanverðri Suður-Ameríku í gær. Margir komu saman til að sjá sólmyrkvann. 3. október 2024 13:46
Deildarmyrkvi í kvöld Deildarmyrkvi á tungli verður sjáanlegur frá öllu Íslandi í kvöld. Lítill hluti tunglskífunnar mun myrkvast og þá mun líta út eins og biti hafi verið tekinn úr tunglinu. Deildarmyrkvinn nær hámarki rétt eftir klukkan 20.00. 28. október 2023 19:23