Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. ágúst 2026 23:18 JJ Gabriel í leik með unglingaliði Manchester United en hann fær eflaust tækifæri með aðalliðinu á komandi leiktíð. Getty/James Gill Undrabarnið JJ Gabriel hjá Manchester United hefur þegar skapað sér nafn og meðbyr á fótboltaferlinum þrátt fyrir að vera enn bara fimmtán ára gamall. Gott dæmi um það er að strákurinn hefur fengið safnspjald úr 24 karata gulli, nokkrum dögum eftir að hann lék sinn fyrsta óopinbera leik með aðalliði félagsins.
Þessi kornungi framherji, sem er talinn einn efnilegasti leikmaðurinn sem komið hefur úr unglingaakademíu United á síðustu árum, kom inn á í sigri félagsins á Atlético Madrid á undirbúningstímabilinu. 🚨 𝗝𝗨𝗦𝗧 𝗜𝗡: Manchester United wonderkid JJ Gabriel receives a one-of-a-kind 24-carat gold trading card.· Just days after making his unofficial senior debut, the 15-year-old was honored with an exclusive 24-carat gold Topps trading card celebrating his status as one of… pic.twitter.com/77CXxlhg7l— The Touchline | 𝐓 (@TouchlineX) August 7, 2026 Leikurinn telst ekki sem opinber frumraun – en gerði hann að yngsta leikmanninum til að spila fyrir aðallið Manchester United í nokkrum leik. Fótboltaspjald Gabriels, númerað 1 af 1, er hluti af nýju spjaldasafni ensku úrvalsdeildarinnar sem gefið var út á fimmtudaginn, en búist er við að spjald unga leikmannsins verði eitt eftirsóttasta nýliðakortið í safninu. Í síðasta mánuði gaf fyrirtækið út spjald með mynd af kantmanni Barcelona, Lamine Yamal, sem barni þegar Lionel Messi baðaði hann, áður en þeir mættust í úrslitaleik heimsmeistaramótsins. 🚨 Manchester United teenager JJ Gabriel received a unique, one-of-a-kind trading card made from real 24-carat gold by Topps, celebrating his rising status shortly after making his unofficial senior debut for the club. pic.twitter.com/ZQnBlboTfp— THE SCORELINE (@THE_SCORELINE_X) August 7, 2026 Á síðasta tímabili seldust fótboltaspjöld með ungum hæfileikamönnum fyrir háar upphæðir, að sögn framleiðandans, eins og það með táningnum Estêvão hjá Chelsea. Það má búast við því að margir vilji eignast þetta einstaka fótboltaspjald Gabriel sem er yngstur þeirra tuttugu leikmanna sem eru á gylltu fótboltaspjaldi í ár. Á listanum eru líka sem dæmi Erling Haaland hjá Manchester City og Declan Rice hjá Arsenal, auk fyrrverandi framherja deildarinnar, Alan Shearer, og Harry Kane, sem spilar með Bayern München.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Fótbolti Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Fótbolti Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Íslenski boltinn Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Formúla 1 „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Fótbolti Dagskráin: Arsenal og Liverpool í Meistaradeildinni og NFL byrjar Sport Fleiri fréttir Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sjá meira