Gunnar Orri Olsen um frumraun sína með FCK: „Þetta er stórt!“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. ágúst 2026 19:18 Gunnar Orri Olsen í leik með nítján ára landsliði Íslands en nú er hann farinn að banka á dyrnar hjá aðalliði FC Kaupmannahafnar. Getty/Molly Darlington Ungur íslenskur knattspyrnumaður spilaði sínar fyrstu mínútur með aðalliði FV Kaupmannahafnar í gær og frumraunin kom í Evrópuleik á útivelli.
Gunnar Orri Olsen varð 346. leikmaður FCK frá upphafi þegar hann spilaði síðustu mínúturnar í Evrópuleiknum gegn ungverska félaginu Debreceni VSC og hann var síðan tekinn í viðtal á heimasíðu danska félagsins. „Þetta er stórt! Þetta er eitthvað sem ég hef unnið að og það mikilvægasta var auðvitað að við kæmum hingað og ynnum, en það var frábært að fá að spila minn fyrsta leik, jafnvel þótt það hafi bara verið nokkrar mínútur,“ sagði Gunnar. View this post on Instagram A post shared by F.C. København (@fc_kobenhavn) Gunnar gekk til liðs við FCK frá Stjörnunni sumarið 2024, þegar hann varð sextán ára, og fékk þá mikið hrós frá Mikkel Köøhler, yfirmanni leikmannamála hjá unglingaliðum FCK. „Spennandi miðjumaður með góða tækni, mikinn hraða og mikla möguleika sem við vonumst til að geta leyst úr læðingi í Kaupmannahöfn,“ sagði Köøhler. Haustið 2025 skrifaði Gunnar undir langtímasamning og á síðasta tímabili var hann hluti af nítján ára liði FCK sem vann tvennuna. Gunnar skoraði tvö mörk í bikarúrslitaleiknum gegn AB. Hann var með í æfingabúðum aðalliðsins í Austurríki í sumar en missti af nokkrum æfingaleikjum vegna meiðsla. Hann varð þó klár fyrir byrjun tímabilsins og var á bekknum í síðustu þremur leikjum FCK án þess að koma við sögu. „Það er auðvitað öðruvísi að spila í meistaraflokki. Þar er meiri hraði, meiri tækni og líkamlega meira krefjandi, svo ég þarf enn að venjast því, en ég hef alltaf verið ákafur í að bæta mig. Ég verð bara að halda áfram og vinna mér inn fleiri mínútur og vonandi byrjunarliðssæti,“ sagði Gunnar Orri.
Danski boltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Sjá meira