Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. ágúst 2026 08:00 Í nóvember næstkomandi verða liðin sex ár frá því að Diego Maradona kvaddi þennan heim en réttarhöld standa enn yfir sjö heilbrigðisstarfsmenn sem eru ákærðir fyrir að hafa vísvitandi vanrækt umönnun hans. Getty/Chris McGrath Nuddari Diego Maradona segir frá síðasta fundi þeirra, daginn áður en fótboltagoðsögnin lést, en Nicolas Taffarel gaf skýrslu á fimmtudag í umdeildum réttarhöldum. „
Ég tilkynnti um vandamálin sem ég sá hjá honum, en ég sá engar áþreifanlegar aðgerðir eða skjóta eftirfylgni,“ sagði Taffarel grátklökkur í réttarsalnum. „Síðustu dagana fór honum að hraka. Hann fór ekki fram úr rúminu, hann vildi ekki borða, hann vildi hvorki þrífa sig né fara í nudd. Ég reyndi sogæðanudd, fótahreyfingar, æfingar fyrir neðri útlimi og veitti honum félagsskap,“ sagði Taffarel. EL MASAJISTA DE MARADONA: “TENÍA LOS OJOS HINCHADOS COMO UNA TETA”Nicolás Taffarel declaró en el juicio por su muerte y aseguró que en los días previos al fallecimiento el exfutbolista presentaba un fuerte deterioro físico, con una marcada hinchazón en el cuerpo y cada vez… pic.twitter.com/OFGGreHbQz— Clarín (@clarincom) August 6, 2026 „Frá og með ferð sinni á Olivos-læknastöðina fór hann að fá bjúg í neðri útlimi, meira í hægri fótlegg en þeim vinstri. Við minntumst á að vinstri fóturinn hans hefði aldrei veikst og þá hló hann. Hann var líka með bjúg á læknastöðinni; ég útvegaði honum þrýstingssokka til að vera í. Augun á honum voru bólgin,“ sagði Taffarel. „Ég hélt að ég væri að gera Luque greiða með því að láta hann vita af öllu. Ég benti á þær aðstæður sem ég sá hjá honum en sá engar áþreifanlegar aðgerðir eða skjóta lausn. Ég var þegar búin að mynda tengsl við hann og vildi að honum batnaði einhvern veginn frá einum degi til annars,“ sagði Taffarel. „Læknarnir báðu mig um að róa mig niður og sögðu að einkennin myndu líða hjá. Þegar maður er áhyggjufullur treystir maður þeim. Maður segir við sjálfan sig að þetta gangi yfir, að allt muni lagast. En það gekk ekki yfir,“ sagði Taffarel. Maradona lést daginn eftir eða 25. nóvember 2020. Sjö heilbrigðisstarfsmenn eiga yfir höfði sér fangelsisdóma á bilinu átta til 25 ár ef þeir verða sakfelldir fyrir að hafa vísvitandi vanrækt umönnun hans. Fyrstu réttarhöldin um dauða Maradona hófust í fyrra en voru dæmd ógild eftir að upp komst að einn dómaranna tók þátt í leynilegri heimildarmynd um málið. Þessi umferð réttarhaldanna gæti staðið fram í september. Hinir ákærðu neita sök. Nicolás Taffarel, masajista de Diego Armando Maradona, dice que estuvo junto a él durante sus últimas dos semanas de vida.https://t.co/nZHd9HvE5A— NMás (@nmas) August 7, 2026
Argentína Fótbolti Mest lesið Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Körfubolti Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Fleiri fréttir Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Sjá meira