Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. ágúst 2026 23:15 Christian Comotto og Luka Modrić saman á mynd með margra ára millibili. Getty/Giuseppe Cottini/@christiancomotto Christian Comotto er að stíga sín fyrstu skref með aðalliði AC Milan á Ítalíu og þar spilar hann við hlið goðsagnarinnar Luka Modrić. Eftir fyrsta leik þeirra saman rifjaði Comotto sjálfur upp gamla mynd á samfélagsmiðlum.
Í undirbúningsleik AC Milan á móti Chelsea mynduðu þeir Comotto og Modrić miðjupar AC Milan frá fyrstu mínútu leiksins. Eftir leikinn birti þessi ungi miðjumaður gamla mynd með Luka Modrić á Instagram. Hann var einnig með myndir af sér úr leiknum og textinn með færslunni var „draumar rætast“. Króatíska goðsögnin er nú á sínu öðru ári hjá AC Milan en hinn ungi Comotto dáði fyrrum stjörnu Real Madrid sem var leikmaður spænska liðsins þegar myndin var tekin. Christian birti eins og áður sagði myndina sjálfur á Instagram, ásamt mynd úr nýlegum leik þar sem Modrić var rétt fyrir aftan hann. Króatíska stjarnan endurbirti síðan minninguna á sínum eigin samfélagsmiðli. Báðir voru í æfingafatnaði Real Madrid á þeim tíma sem gamla myndin var tekin en á meðan Modrić var þegar orðinn einn af bestu miðjumönnum heims var Comotto bara barn sem dreymdi um að verða fótboltamaður eins og faðir hans, Gianluca, enda er 23 ára aldursmunur á þeim tveimur. Örlögin sáu hins vegar til þess að þessi gamla mynd varð að veruleika fyrir AC Milan, þar sem Luka stefnir að því að bæta fyrir síðasta tímabil og vinna titil í búningi AC Milan áður en hann leggur skóna á hilluna, á meðan þessi ungi leikmaður, sem er fæddur árið 2008, mun reyna að brjótast inn í lið AC Milan í fyrsta skipti á komandi tímabili. View this post on Instagram A post shared by Christian Comotto (@christiancomotto)
Ítalski boltinn Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Golf Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Enski boltinn Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Fleiri fréttir Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Stór varða í langþráðri endurkomu Patriks: „Eitt skref í einu“ Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Hjartaaðgerð McTominay gekk vel Mourinho fékk úðara að gjöf Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Treyjur Liverpool taka breytingum Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst og Hákon er þar í eldlínunni Árni Gautur heiðraður af ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur R. 1-2 | Spyrntu sér frá botninum Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 1-1| Blikar á toppnum inn í úrslitakeppni Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Daníel Guðjohnsen fékk tækifæri eftir mikla óvissu Elche - Real Sociedad | Orri í eldlínunni Lið Elíasar bjargaði stigi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjá meira