Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Samúel Karl Ólason skrifar 10. ágúst 2026 17:38 Búið er að setja upp fjölda tjalda á Hellissandi og þar af hátíðartjald sem sagt er vera það stærsta sem hafi verið tjaldað hér á landi. Skipuleggjendur Eclipse Festival á Hellissandi búast við því að fólksfjöldi þar muni tífaldast meðan á hátíðinni stendur. Þegar er búið að selja um þrjú þúsund miða til gesta frá 75 þjóðum, sem eru væntanlegir í vikunni. Hátíðin er fimm daga tónlistar- og upplifunarhátíð sem hefst á miðvikudaginn.
Undirbúningur mun hafa gengið mjög vel, þótt verulega slæmt veður hafi sett strik í reikninginn, en fyrstu gestir eru þegar mættir. Stærsta hátíðartjald sem sett hefur verið upp hér á Íslandi var flutt inn vegna hátíðarinnar. „Fyrir viku vissum við ekki alveg viss um hvernig þetta myndi fara. Rokið hér undir Jökli lét heldur betur finna fyrir sér og í meira en tvo sólarhringa komust varla nokkrar sendingar hingað. Svo snerist veðrið nánast á punktinum. Nú er blankalogn, sól og svæðið iðar af lífi. Búnaðurinn stóð storminn af sér, mannskapurinn er kominn í essið sitt og tveimur dögum fyrir hátíð er nánast allt tilbúið,“ segir Jón Bjarni Steinsson, einn skipuleggjenda Eclipse Festival 2026 í tilkynningu. Þar segir að undirbúningurinn fyrir hátíðina nái langt út fyrir sjálft hátíðarsvæðið á Hellissandi. Þjónustuaðilar hafi verið að birgja sig upp og verður þjónusta aukin á meðan á hátíðinni stendur. Sundlaugin á Hellissandi verður opin frá því snemma á morgnana og fram á miðnætti og íþróttahúsið verður einnig opið, meðal annars þannig að gestir geti komist í sturtu. „Það er mikil samstaða í samfélaginu um að taka vel á móti öllum þessum fjölda. Þjónustuaðilar hafa verið að birgja sig upp og sveitarfélagið og aðrir aðilar laga þjónustuna að því að hér verði margfalt fleira fólk en venjulega. Þetta er stórt verkefni en samstarfið hefur verið mjög gott,“ segir Jón Bjarni. Hér að neðan má sjá myndband sem tekið var upp þegar dróna var flogið yfir hátíðarsvæðið á Hellissandi. Í áðurnefndi tilkynningu segir að miðasala hafi gengið vonum framar og nánast sé uppselt meðal erlendra gesta. Nokkur hundruð miðar sem eru sérstaklega ætlaðir fólki sem býr á Íslandi séu þó óseldir. Frekari upplýsingar um hátíðina má finna hér.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Snæfellsbær Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira