Komst ekki í undanúrslit þrátt fyrir að hafa unnið sinn riðil Andri Broddason skrifar 11. ágúst 2026 15:31 Yohann Ndoye Brouard fær ekki að synda í undanúrslitum í 200 metra baksundi á EM í sundi. Alex Slitz/Getty Images Franski sundkappinn Yohann Ndoye Brouard kom fyrstur í mark í sínum riðli í undankeppni EM í sundi. Þrátt fyrir það fékk hann ekki sæti í undanúrslitum og er því dottinn úr keppni.
Yohann Ndoye Brouard ætlaði að tryggja sig þægilega í undanúrslit þegar hann synti í 200 metra baksundi. Þegar hann kláraði var hann hraðastur allra og virtist vera öruggur í undanúrslit. Samlandar hans, Mewen Tomac og Nathan Muratory, vissu tímann hans Brouard og lögðu þeir sig alla fram til að bæta hann. Tomac og Muratory náðu báðir að bæta tímann hans Brouard en hann var með fimmta hraðasta tíma allra og ætti því að vera öruggur í undanúrslitin. Hann komst ekki áfram í undanúrslitin þar sem það mega ekki fleiri en tveir vera frá hverju landi í undanúrslitunum. Þrátt fyrir að vera með fimmta hraðasta tímann í heildina var hann þriðji hraðasti Frakkinn og fær því ekki að taka þátt í undanúrslitum. Eftir keppnina var Brouard skiljanlega svekktur þar sem hann gaf sig ekki allan í undankeppnina. „Ég átti smá orku eftir en ég vanmat mótherjana mína. Mig langaði virkilega að ná verðlaunasæti í 200 metra baksundi, en þeir vildu líka ná því,“ sagði Brouard eftir að hafa fallið úr leik. Sextán sundmenn komast í undanúrslitin en Antoine Herlem, annar franskur sundkappi, var með þrettánda hraðasta tímann og fær því ekki heldur að taka þátt í undanúrslitunum. Frakkland er eina landið sem missir sundkappa úr undanúrslitum þar sem of margir Frakkar eru í undanúrslitum.
Sund Mest lesið Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Como - Manchester United | Fámennt United-lið mætt til Ítalíu Fótbolti Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Fleiri fréttir Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Lille - Galatasaray | Hákon og félagar fá Tyrki í heimsókn Como - Manchester United | Fámennt United-lið mætt til Ítalíu Fór út í bíl og náði í byssu Messi klæddist Como-treyju Skagamenn á vergangi og af hverju skrifa fótboltamenn ekki á íslensku? Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Dagskráin: Meistaradeildin og Körfuboltakvöld kvenna „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Sjá meira