Segir að Guardiola hafi verið „mjög nálægt“ því að taka við Ítalíu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. ágúst 2026 21:45 Pep Guardiola er hættur með Manchester City en vill taka sér gott frí áður en hann tekir við öðru fótboltaliði. Getty/Alex Livesey Pep Guardiola var svo nálægt því að verða nýr landsliðsþjálfari Ítalíu að hann byrjaði að krota niður möguleg byrjunarlið á blað í viðræðum um starfið, að sögn Paolo Maldini sem hefur nú tjáð sig um viðræður sínar og spænska þjálfarans.
Maldini var í stuttan tíma falið að aðstoða við endurmótun ítalskrar knattspyrnu eftir að hafa verið ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá ítalska knattspyrnusambandinu (FIGC) í júlí. Maldini sagði upp ásamt ráðgjafanum Leonardo eftir aðeins sextán daga vegna óróa í kringum leitina að nýjum landsliðsþjálfara. Á þessum stutta tíma átti Maldini í alvarlegum viðræðum við nokkur af stærstu nöfnunum í þjálfun, þar á meðal Guardiola og Carlo Ancelotti. Maldini sagðist hafa ferðast til Barcelona til að hitta Guardiola og eytt heilum degi í að ræða sýn sína á Ítalíu. „Hann er sá þjálfari sem kann besta að kalla fram tæknilegan og sóknarsinnaðan leik. Í gegnum vini hafði hann lýst yfir áhuga á að þjálfa landslið. Við heimsóttum hann í Barcelona, borðuðum saman hádegismat og ræddum saman heilan dag,“ sagði Maldini í viðtali við Corriere Della Sera. „Hann var mjög spenntur og var mjög nálægt því að samþykkja að taka við. Hann byrjaði meira að segja að skrifa niður byrjunarlið á blað,“ sagði Maldini. Maldini vísaði einnig á bug fréttum um að Guardiola hefði krafist tuttugu milljóna evra í árslaun fyrir starfið og fullyrti að fjármál hefðu ekki komið í veg fyrir samkomulag. „Alls ekki. Peningar voru aldrei vandamál. Pep sagði okkur skýrt: ‚Gefið mér eina evru minna en síðasti þjálfari fékk, og ég er sáttur,“ sagði Maldini. Þess í stað sagði Maldini að Guardiola hefði ákveðið að hann þyrfti á hvíld að halda eftir að hafa stýrt Manchester City í áratug. „Vegna þreytu,“ sagði Maldini þegar hann var spurður hvers vegna Guardiola hafnaði Ítalíu að lokum. „Guardiola er að koma úr tíu erfiðum árum í ensku úrvalsdeildinni. Hann fór í bakaðgerð. Hann vill hvíla sig en þetta voru mjög alvarlegar viðræður. Við skoðuðum leikmannahópana, allt frá U-17 og upp úr,“ sagði Maldini. Roberto Mancini var að lokum ráðinn þjálfari Ítalíu í annað sinn á meðan Claudio Ranieri tók við af Maldini sem yfirmaður knattspyrnumála.
Ítalski boltinn EM 2028 í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Fleiri fréttir Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Sjá meira