Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Kristján Már Unnarsson skrifar 11. ágúst 2026 22:00 Hundurinn Lappi bíður eftir ferðamönnum á áningarstaðnum í Vatnsdalshólum. Egill Aðalsteinsson Hundur á sveitabæ einum í Húnaþingi er orðinn stjarna á netinu. Hann liggur gjarnan á áningarstað við Vatnsdalshóla og bíður eftir ferðamönnum sem streyma að til að fá að klappa honum.
Í kvöldfréttum Sýnar hittum við vingjarnlega smalahundinn Lappa en hann má iðulega sjá við Skúlahól, einn af Vatnsdalshólum. Sá hóll er með stiga upp á topp, stiga sem ferðamenn eru farnir að kalla „Stairway to Heaven“ eða Himnastiga. Dóra Sigurðardóttir er bóndi í Vatnsdalshólum og listamaður. Hundurinn fyrir aftan.Egill Aðalsteinsson Lappi á heima á bænum Vatnsdalshólum skammt frá og þar hittum við hann á hlaðinu. Eigandi hundsins, Dóra Sigurðardóttir, rekur þar listagallerí. Hún fylgdi okkur að áningarstaðnum við hólana frægu til að segja okkur frá hundinum. Þar er meira að segja komið skilti sem á stendur: „Vingjarnlegi smalahundurinn Lappi tekur vel á móti ykkur.“ Og þar bíður hann eftir næstu ferðamönnum. „Vingjarnlegi smalahundurinn Lappi tekur vel á móti ykkur,“ stendur á skilti við áningarstaðinn vð Flóðið í Vatnsdalshólum.Egill Aðalsteinsson -Hundurinn, hann hefur slegið í gegn, hann er orðinn vinsæll? „Heldur betur. Og við komumst ekki að þessu fyrr en að fólk kom heim og fór að spyrja eftir honum. Þá var okkur sagt að hann væri fjölmiðlastjarna á netinu. Það væru allir að, sem sagt, að taka selfí af honum með sér,“ segir bóndinn og listamaðurinn Dóra. Á meðan við vorum á staðnum mætti þangað hópur erlendra ferðamanna til að klappa hundinum og mynda sig með honum. Erlendir ferðamenn með hundinum Lappa.Egill Aðalsteinsson En hversvegna er hann svona vinsæll? „Þetta er bara vinalegur hundur og hefur þolinmæði til að láta klóra sér og klappa. Ætli það sé ekki það. Hann nennir þessu. Það eru ekki læti í honum. Hann er kominn yfir unglingaveikina. Þannig að hann nennir að lofa fólki að klappa sér. Ég held að það sé það sem er svona sjarmerandi,“ svarar Dóra. Hundurinn liggur gjarnan við Skúlahól. Stigi er upp á hólinn.Egill Aðalsteinsson Og ef ferðafólk finnur ekki hundinn á áningarstaðnum þá kemur það fyrir að það aki heim á hlað til Dóru í von um að hitta hann. „Það hefur engan áhuga á að sjá listina mína heldur er það hundurinn sem það vill hitta,“ segir Dóra og skellihlær, eins og heyra má hér í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Hundar Húnabyggð Ferðalög Dýr Landbúnaður Myndlist Tengdar fréttir Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Íbúar Vatnsdals í Húnaþingi sjá fram á umtalsverðar vegarbætur með lagningu bundins slitlags á þrettán kílómetra vegarkafla. Vanda þarf sérstaklega til verksins þar sem kaflinn liggur í gegnum friðlýsta Vatnsdalshóla. 17. júní 2026 07:22 Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira
Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Íbúar Vatnsdals í Húnaþingi sjá fram á umtalsverðar vegarbætur með lagningu bundins slitlags á þrettán kílómetra vegarkafla. Vanda þarf sérstaklega til verksins þar sem kaflinn liggur í gegnum friðlýsta Vatnsdalshóla. 17. júní 2026 07:22