Slot hafnar hollenska landsliðinu Valur Páll Eiríksson skrifar 12. ágúst 2026 10:32 Slot mun ekki stýra van Dijk hjá landsliðinu. Getty/Robbie Jay Barratt Arne Slot dró sig út úr viðræðum við hollenska knattspyrnusambandið vegna þjálfarastarfs landsliðs þess. Slot vill heldur taka við félagsliði en landsliði.
Hinn 47 ára gamli Slot hefur verið án starfs síðan honum var sagt upp hjá Liverpool á Englandi í lok maí. Hann vann enska meistaratitilinn á fyrsta tímabili sínu hjá Rauða hernum en eftir erfiða aðra leiktíð skildu leiðir í vor. Hann hefur verið orðaður við landsliðsþjálfarastarf heimalandsins en Ronald Koeman sagði af sér sem þjálfari Hollands í annað sinn eftir að Hollendingar féllu úr leik í 32-liða úrslitum á HM, fyrir Marokkó. „Undanfarnar vikur, og sérstaklega síðustu daga, hafa ýmsar fréttir birst varðandi lausa stöðu hjá hollenska landsliðinu, sem benda til þess að ég hafi dregið mig út úr ferlinu eftir langar samningaviðræður, þar á meðal um laun og samningstíma,“ sagði Slot við Voetbal International. „Þessar vangaveltur eru rangar. Við náðum einfaldlega aldrei því stigi í viðræðunum.“ Slot, sem vann hollensku úrvalsdeildina með Feyenoord árið 2023, útilokaði ekki að taka við landsliðinu í framtíðinni. „Á þessu stigi ferils míns kýs ég að sjá mig á æfingavellinum með leikmönnum mínum á hverjum degi. Eitthvað sem er einfaldlega ekki mögulegt á sama hátt með landsliði,“ sagði hann. „Og (þess vegna) valdi ég að halda ekki áfram viðræðunum og hefja ekki samningaviðræður um hvernig hugsanlegur samningur gæti litið út. „Ég ber mikla virðingu fyrir landsliðinu og KNVB og get aðeins verið jákvæður varðandi fagmannlega framkomu viðræðnanna þá vikuna. Í bili tel ég að félagsfótbolti hafi enn margt upp á að bjóða mér.“ Hann bætti við: „Það væri mikill heiður að keppa fyrir land mitt einn daginn sem landsliðsþjálfari. Hins vegar var þetta ekki rétti tíminn fyrir mig.“ Fyrrverandi þjálfari Portúgals, Roberto Martinez, er nú í viðræðum við KNVB, samkvæmt fréttum í Hollandi. Hann stýrði áður landsliði Belgíu.
Hollenski boltinn Liverpool FC Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Fleiri fréttir Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Sjá meira