Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Birgir Olgeirsson skrifar 12. ágúst 2026 10:44 Búast má við margmenni á Bolafjalli við Bolungarvík í dag en boðið verður upp á rútuferðir þangað vegna almyrkvans. Vísir/Vilhelm Fjöldi fólks á Vestfjörðum margfaldast í dag þegar ferðamenn streyma á svæðið til að fylgjast með almyrkvanum. Mest er álagið á sunnanverðum fjörðunum en Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vestfjörðum, segir viðbúnað ganga samkvæmt áætlun.
Aðspurður hvort mannfjöldinn á Vestfjörðum sé að margfaldast segir Hlynur það nokkuð ljóst. „Á umferðartölum af síðasta sólarhring voru einhverjir 1.500 bílar sem fóru um teljara þarna á Klettshálsi og eitthvað færri í Djúpinu.“ Það styttist jafnframt í að þúsund bílar séu komnir inn á vegarkaflann að Látrabjargi. Lögregla telur bíla en ekki fólk. Ef miðað er við þrjá í hverjum bíl samsvarar sá fjöldi um þrjú þúsund manns. Geta lokað við Patreksfjörð Lögregla miðar við að ekki fari mikið fleiri en rúmlega þrjú þúsund bílar inn á Örlygshafnarveg enda þoli svæðið ekki meiri bílafjölda. Þegar þeim mörkum verður náð getur veginum verið lokað í botni Patreksfjarðar. „Fólk má alveg búast við því að það komi lokunarhliðinu í botni Patreksfjarðar,“ segir Hlynur. Rauðisandur og Látrabjarg sjálft eru að fyllast en enn er rými fyrir fleiri bíla í Breiðavík. Hlynur hvetur fólk til að hafa fleiri en einn mögulegan útsýnisstað í huga. „Ég hvet fólk til þess að gera ráðstafanir og gera plan A, B og C varðandi staðsetningu.“ Fólk þurfi ekki að vera á Látrabjargi eða Bolafjalli til að fylgjast með myrkvanum. „Það er víða fallegt útsýni á Vestfjörðum, eiginlega alls staðar.“ Sextán lögreglumenn til viðbótar Sextán lögreglumenn eru að störfum til viðbótar við hefðbundna vakt. Björgunarsveitarfólk er um 20 talsins, jafnvel á þriðja tug, og aðstoðar meðal annars við umferðarstýringu. Vegagerðin stýrir umferð í Vestfjarðagöngum undir Breiðadals- og Botnsheiði og aðstoðar lögreglu á Örlygshafnarvegi. Lokað hefur verið fyrir almenna umferð upp á Bolafjall en sætaferðir eru farnar frá félagsheimilinu í Bolungarvík. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða hefur fjölgað sjúkrabílum og aukið viðveru lækna og hjúkrunarfólks. Sjúkrabíll er á Látrabjargssvæðinu auk bílsins á Patreksfirði. „Við erum búin að undirbúa okkur undir töluverðan fjölda og erum að reyna að lágmarka slysahættu, en við erum jafnframt tilbúin í að bregðast við og vera með stutt viðbragð ef eitthvað fer úrskeiðis,“ segir Hlynur.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Bolungarvík Útsýnispallur á Bolafjalli Látrabjarg Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Fleiri fréttir Hvorki ákærðu né brotaþoli könnuðust við fíkniefnabrask Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Sjá meira