Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. ágúst 2026 07:01 Michael Owen skoraði 158 mörk í 297 leikjum í öllum keppnum með Liverpool. Getty/Jon Buckle Michael Owen, níundi markahæsti leikmaðurinn í sögu Liverpool, er á því að Liverpool verði að landa Bradley Barcola, kantmanni Paris St Germain, til að eiga einhverja möguleika á að vinna ensku úrvalsdeildina á komandi tímabili.
Eftir vonbrigðatímabil þar sem liðið náði aðeins fimmta sæti í ensku úrvalsdeildinni var Arne Slot látinn fara og Andoni Iraola, fyrrverandi stjóri Bournemouth, ráðinn í hans stað. Enn sem komið er hefur Baskinn ekki fengið jafn marga né jafn góða leikmenn og forveri hans en Slot fékk leikmenn fyrir 450 milljónir punda síðasta sumar, þar á meðal Alexander Isak og Florian Wirtz. Miðverðirnir Jeremy Jacquet og Ronald Araujo (á láni frá Barcelona) ásamt spænska kantmanninum Victor Munoz eru þeir einu sem hafa bæst við hópinn hjá Liverpool í sumar. Eftir brotthvarf Mohamed Salah og langvinn hásinarmeiðsli Hugo Ekitike er sóknarlína Liverpool fáliðuð. Barcola hefur lengi verið á óskalistanum en núverandi verðmiði PSG, 145 milljónir punda, er langt yfir því sem Liverpool metur hann á. „Ég tel að Liverpool þurfi meira, en það lítur út fyrir að Barcola sé sá sem þeir vilja og það mun kosta þá gríðarlega háa upphæð að fá hann,“ sagði Owen í samtali við Metro. „En ef þeim tekst það og þeir geta bætt við meiri breidd og gæðum, þá geta þeir fyrir alvöru barist um titilinn. Síðasta tímabil hjá Liverpool var ekki frábært, leikstíllinn var ekki eins góður og áður og þeir fengu á sig allt of mörg mörk,“ sagði Owen „En með brotthvarfi Slot og komu Iraola breytist leikstíllinn. Hann kemur með mikinn spennandi fótbolta frá tíma sínum hjá Bournemouth, en Liverpool er mun stærra félag og pressan á hann eykst núna,“ sagði Owen.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Fótbolti Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Fótbolti Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Íslenski boltinn Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Formúla 1 „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Messi að kaupa hundrað prósent hlut í spænsku félagi Fótbolti Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Sjá meira