„Viss um að þetta sé rétta skrefið fyrir feril minn“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. ágúst 2026 18:41 Valgeir Lunddal Friðriksson mun spila í treyju númer þrjú hjá Viborg. Hér er hann með Mads Agesen, yfirmanni knattspyrnumála hjá danska félaginu. vff.dk Íslenski knattspyrnumaðurinn Valgeir Lunddal Friðriksson hefur gengið frá samningi við danska úrvalsdeildarfélagið Viborg FF.
Hinn 24 ára gamli og 191 sentimetra hái varnarmaður kemur til danska félagsins á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Fortuna Düsseldorf rann út í sumar. Hann gerir samning við danska félagsins til ársins 2029. „Við erum mjög ánægð með að þetta sé frágengið með Valgeir. Við fáum fjölhæfan bakvörð sem getur spilað báðum megin, er góður með boltann og hefur um leið góðan líkamlegan pakka. Hann er fótboltagreindur leikmaður sem hefur líka þegar reynt sitthvað þrátt fyrir tiltölulega ungan aldur, þar sem hann kemur með bæði alþjóðlega reynslu úr landsliðinu, hefur unnið gull í Svíþjóð og verið tvö tímabil í 2. Bundesligunnim,“ sagði Mads Agesen, yfirmaður knattspyrnumála hjá Viborg, í viðtali á heimasíðu félagsins. Valgeir Lunddal á að baki sextán A-landsleiki fyrir Ísland og var síðast valinn í landsliðið fyrir verkefni í maí á þessu ári. Valgeir lék með bæði Fjölni og Val áður en hann fór til sænska liðsins BK Häcken í Allsvenskan árið 2021. Þar spilaði hann alls 89 leiki og varð sænskur meistari árið 2022, og síðar færði Valgeir sig yfir til Fortuna Düsseldorf. „Það er fyrst og fremst mikill heiður fyrir mig að vera hér og ég hlakka mikið til að hitta nýju liðsfélagana mína. Hlutirnir hafa gerst hratt síðustu daga og ég er viss um að þetta sé rétta skrefið fyrir feril minn. Aðdáendur Viborg geta búist við bakverði sem finnst gaman að sækja, gefa fyrir og hjálpa kantmönnunum að skapa góðar aðstæður, svo ég vona auðvitað að ég muni leggja vel af mörkum þar,“ sagði Valgeir við heimasíðu Viborg. „Ég þekki til og hef fylgst með dönsku deildinni og dönskum fótbolta, þar sem nokkrir vinir mínir hafa spilað í Danmörku. Patrik Gunnarsson, sem hefur spilað hér hjá félaginu, er góður vinur minn, svo mín fyrstu kynni eru þegar góð. Ég veit að þetta er erfið og sterk deild sem ég hlakka til að verða hluti af. Nú hlakka ég bara til að byrja,“ sagði Valgeir. View this post on Instagram A post shared by Viborg FF ☘️ (@viborgff)
Danski boltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Sjá meira