Neytendur

Inn­kalla frosin hind­ber eftir að skor­dýr fannst í pokanum

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Skordýr fundust í poka af frosnum hindberjum.
Skordýr fundust í poka af frosnum hindberjum. Matvælastofnun

Ein lota af frosnum hindberjum frá Grön balance hefur verið innkölluð vegna mögulegra skordýra í vörunni. Hindberin voru til sölu í Krónunni.

Krónan, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs og Mosfellsbæjar, hefur innkallað vöruna af markaði.

Um er að ræða 150 gramma poka af frosnum hindberjum sem eru best fyrir 19. mars 2028. Innflytjandi er Krónan og fást þessi tilteknu hindber einungis í Krónunni. Þau koma upprunalega frá Póllandi þar sem framleiðandi er Dagrofa ApS.

Neytendum sem hafa fest kaup á vörunni er bent á að skila henni í viðkomandi verslun gegn endurgreiðslu. Í fréttatilkynningu Krónunnar biðjast þau afsökunar á óþægindum sem þetta kann að valda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×