Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. ágúst 2026 21:06 Valsarinn Atli Freyr Haraldsson Katrínarson var með 18 stig og 13 fráköst í úrslitaleiknum. FIBA Basketball Íslenska sextán ára landsliðið í körfubolta varð að sætta sig við silfrið í B-deild Evrópukeppninnar í ár eftir naumt 69-67 tap í úrslitaleik á móti gríðarlega sterkum Króötum.
Íslenska liðið hafði unnið alla leiki sína í keppninni nema fyrri leikinn á móti Króötum sem tapaðist með 27 stigum í riðlakeppninni. Íslensku strákarnir sýndu mun betri leik í kvöld og úr varð svakalegur leikur á milli tveggja öflugra liða. Íslenska liðið var yfir þegar fimm sekúndur voru eftir af leiknum en Króatarnir settu niður þrist í blálokin og tryggðu sér gullið. Valsarinn Atli Freyr Haraldsson Katrínarson var atkvæðamestur með 18 stig, 13 fráköst og 3 stoðsendingar en Keflvíkingurinn Davíð Breki Antonsson bætti við 13 stigum og 5 stoðsendingum. Sindramaðurinn Hlynur Ingi Finnsson skoraði 11 stig og Stjörnustrákurinn Jón Breki Sigurðarson var með 10 stig og 9 fráköst. Stjörnumennirnir Baltasar Torfi Hlynsson og Kormákur Nói Jack voru síðan með sex stig hvor en Kormákur tók einnig átta fráköst. FIBA Basketball Króatar byrjuðu betur og voru fimm stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 17-12, en íslensku strákarnir ætluðu ekki að láta hlaupa yfir sig eins og í fyrri leiknum. Íslenska liðið komst meðal annars yfir í lok fyrri hálfleiks en Króatar leiddu með tveimur stigum í hálfleik, 40-38. Strákarnir voru líka einu stigi yfir, 55-54, fyrir lokaleikhlutann eftir þriggja stiga körfu frá Davíð Breka. Lokaleikhlutinn var æsispennandi og 93 sekúndum fyrir leikslok setti Atli Freyr niður þrist og kom Íslandi yfir í 67-66. Króatar náðu að skora sigurkörfuna á lokasekúndunum og lokaskot íslensku strákanna geigaði. Svekkjandi tap sem stórkostleg frammistaða á móti liði sem hafði unnið alla leiki sína á mótinu mjög stórt. Það mikilvægasta er að íslensku strákarnir tryggðu Íslandi sæti í A-deild Evrópukeppninnar á næsta ári.
Landslið karla í körfubolta Mest lesið Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Fótbolti „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fótbolti UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fótbolti Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Sport Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf Segir Horner vera að trufla Ferrari Formúla 1 Fleiri fréttir Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Sjá meira