Bjart og sólríkt víðast hvar Lovísa Arnardóttir skrifar 18. ágúst 2026 07:09 Það verður léttskýjað og allt að sautján stiga hiti í dag. Vísir/Anton Brink Í dag er spáð austlægri eða breytilegri átt, 3-8 metrum á sekúndu, en 5-13 við suðaustantil í dag. Lítilsháttar vætu er spáð á Austfjörðum og Suðausturlandi, en annars léttskýjað að mestu.
Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar kemur fram að lægðin sem hefur verið suður af landinu fjarlægist landið og þá eigi að lægja á suðurhelmingi landsins. Vindur verði þá almennt fremur hægur fyrir norðan. Vænta má lítilsháttar vætu á Austfjörðum og Suðausturlandi, en annars björtu og sólríku veðri víða. Veðurfræðingur segir útlit fyrir rólegheitaveður á morgun, miðvikudag og fimmtudag, þurrt og milt, en þegar líður á fimmtudaginn verði orðið skýjað um landið vestanvert og gæti fylgt súldarloft með. Svo er að sjá að það nálgist alldjúpar lægðir með suðlægum áttum með rigningu, mest þó sunnan- og vestanlands. Hlýindin eiga þó að haldast áfram. Greiðfært er um landið allt en þó víða vegavinna og viðgerðir. Á vef Vegagerðar er varað við steinkasti og jafnvel töfum vegna þessarar vinnu. Hraði er tekinn niður á flestum vinnusvæðum og eru ökumenn hvattir til að halda 50 metra á milli bíla til að minnka líkur á skemmdum vegna steinkasts. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag og fimmtudag: Fremur hæg vestlæg eða breytileg átt og víða bjartviðri, en skýjað að mestu á vestanverðu landinu og sums staðar dálítil súld. Hiti yfirleitt 10 til 16 stig yfir daginn. Á föstudag: Suðlæg átt, 3-10 m/s og dálítil væta á vestanverðu landinu, en annars skýjað með köflum. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast fyrir austan. Á laugardag (menningarnótt): Sunnan- og suðvestanátt og víða rigning vestantil, en annars skýjað og þurrt. Fremur hlýtt í veðri. Á sunnudag: Suðaustanátt með rigningu og mildu veðri, en úrkomulítið norðaustan- og austanlands. Á mánudag: Útlit fyrir breytilega átt með skúrum í flestum landshlutum. Áfram hlýtt í veðri.
Veður Færð á vegum Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Sjá meira