Körfubolti

Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM

Sindri Sverrisson skrifar
Elvar Már Friðriksson og félagar náðu tveimur sigrum gegn Ítalíu og einum gegn Bretlandi með sér á seinna stig undankeppninnar.
Elvar Már Friðriksson og félagar náðu tveimur sigrum gegn Ítalíu og einum gegn Bretlandi með sér á seinna stig undankeppninnar. Getty/Jón Gautur

Þjálfarinn Craig Pedersen hefur valið þrettán leikmenn í landsliðshóp karla í körfubolta fyrir upphaf seinni hluta undankeppni HM.

Helstu stjörnur íslenska liðsins eru í hópnum en framundan eru leikir við Serbíu og Tyrklandi í lok þessa mánaðar, eftir vináttulandsleik við Finnland á föstudaginn. Hópinn má sjá hér að neðan.

Hópurinn sem heldur til Finnlands og Serbíu.KKÍ

Strákarnir okkar náðu mjög góðum árangri í fyrri hluta undankeppni HM og taka með sér sigrana tvo gegn Ítalíu og sigurinn gegn Bretlandi en einnig tapið gegn Bretlandi og töpin tvö gegn Litháen.

Þeir eru því með níu stig (tvö stig fyrir sigur, eitt stig fyrir tap) í 5. sæti síns riðils nú þegar seinni hlutinn hefst.

Standings provided by Sofascore

Ísland byrjar seinni hlutann á svakalegum útileik við Serbíu í Belgrad 28. ágúst og tekur svo á móti Tyrklandi þremur dögum síðar. Tyrkir eru með fullt hús stiga á toppi riðilsins en Serbía með tíu stig í 3. sæti.

Íslenska liðið æfir saman í Ásgarði í Garðabæ í þessari viku en heldur svo til Helsinki á morgun fyrir vináttuleikinn við heimamenn á föstudag. Þaðan fer hópurinn svo til Belgrad á mánudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×