Körfubolti

Kefla­vík heldur á­fram að styrkja sig

Ágúst Orri Arnarson skrifar
[347400] BASKET LEAGUE 2021-2022 / ΑΕΚ - ΚΟΛΟΣΣΟΣ (ΜΑΡΚΟΣ ΧΟΥΖΟΥΡΗΣ / EUROKINISSI) BASKET LEAGUE 2021-2022 / ΑΕΚ - ΚΟΛΟΣΣΟΣ (ΜΑΡΚΟΣ ΧΟΥΖΟΥΡΗΣ / EUROKINISSI)
[347400] BASKET LEAGUE 2021-2022 / ΑΕΚ - ΚΟΛΟΣΣΟΣ (ΜΑΡΚΟΣ ΧΟΥΖΟΥΡΗΣ / EUROKINISSI) BASKET LEAGUE 2021-2022 / ΑΕΚ - ΚΟΛΟΣΣΟΣ (ΜΑΡΚΟΣ ΧΟΥΖΟΥΡΗΣ / EUROKINISSI) ΜΑΡΚΟΣ ΧΟΥΖΟΥΡΗΣ / EUROKINISSI

Gríski framherjinn Panagiotis Filippakos hefur samið við Keflavík um að leika með liðinu á komandi tímabili í Bónus deild karla í körfubolta.

Filippakos hefur leikið fyrir fjölmörg félög í Grikklandi. Hann var síðast á mála hjá Dafni í þriðju efstu deild Grikklands en hefur áður orðið frákastakóngur næstefstu deildar og á nokkra leiki að baki í úrvalsdeildinni með liði AEK Aþenu.

Grikkinn er 202 sentimetra hár en með 219 sentimetra vænghaf, sem hjálpar vel við fráköstin.

Hann er annar leikmaðurinn sem Keflavík tilkynnir á síðustu tveimur sólarhringum. Í gær var tilkynnt um komu Jamir Chaplin frá Bandaríkjunum.

Keflavík varð í 5. sæti Bónus deildarinnar á síðasta tímabili og féll úr leik í fyrstu umferð úrslitakeppninnar eftir einvígi við Val sem fór alla leið í oddaleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×