Sjóræningjar tóku tyrneskt hergagnaskip Samúel Karl Ólason skrifar 20. ágúst 2026 16:14 Lögreglumenn frá Puntlandi í Sómalíu í eftirlitsferð á Adenflóa. Getty/Abuukar Mohamed Muhidin, Anadolu Útlit er fyrir að sómalskir sjóræningjar séu aftur byrjaðir að láta til sín taka á Adenflóa og Rauðahafi, eftir að hafa látið lítið fyrir sér fara um árabil. Fyrr í vikunni réðust sjóræningjar um borð í tyrkneskt skip sem var meðal annars að flytja vopn og sigldu því til Sómalíu.
Síðastliðinn mánudag réðust átta vopnaðir menn um borð í tyrkneska flutningaskipið Lutuf, undan ströndum Sómalíu. Um borð í skipinu voru tíu menn sem voru að flytja vopn, ýmis hergögn og samskiptabúnað til þjálfunarbúðar Tyrkja í Mogadishu. Sami hópur rændi öðru skipi í apríl og þá réðust einnig sex vopnaðir menn um borð í olíuflutningaskip undan ströndum Jemen í dag. Skipið sem tekið var í dag er nú sagt á leið til Sómalíu. UKMTO WARNING 118-26 UPDATE 001 Click here to view the full product⤵️ https://t.co/TA6cqIqsyJ#MaritimeSecurity #MarSec pic.twitter.com/fBRghwkqpJ— UKMTO Operations Centre (@UK_MTO) August 20, 2026 AP fréttaveitan hefur eftir ónafngreindum heimildarmanni í Sómalíu að eftir að sjóræningjarnir tóku Lutuf á mánudaginn hafi skipinu verið fylgt eftir af tyrkneskum skipum og að minnsta kosti einni þyrlu. Þegar skipinu var siglt að landi var gerð loftárás á svæðinu og dóu fjórir menn í henni. Ekki liggur fyrir hverjir gerðu árásina, hverjir dóu né nákvæmlega hvert skotmarkið var. Hvar áhöfn skipsins er liggur sömuleiðis ekki heldur fyrir, né hvað varð um hergögnin um borð. Ráðamenn í Tyrklandi hafa ekki svarað fyrirspurnum AP. Skipinu sem sami hópur er talinn hafa tekið í apríl var einnig siglt til Sómalíu. Það heitir Asana og er olíuflutningaskip skráð í Tansaníu. Versnandi ástand, fleiri sjóræningjar Sómalskir sjóræningjar voru mjög umsvifamiklir um árið 2010 en þá var fljótt farið í hart gegn þeim. Bandaríkin og ríki Evrópu sendu herskip á svæðið og hefur lítið farið fyrir sjóræningjunum síðan þá. Þeim hefur hins vegar vaxið ásmegin að undanförnu, samhliða mjög slæmu og versnandi ástandi víða í Sómalíu. Eins og fram kemur í grein CNBC hafa þurrkar og lítið fæðuöryggi leikið Sómala grátt. Öryggisástand hefur versnað og dregið hefur úr mannúðaraðstoð. Þetta hefur allt leitt til fjölgunar sjóræningja og vígamanna í Sómalíu sem eiga þar að auki í auknu samstarfi við Húta í Jemen. Frá þeim hafa sjóræningjarnir fengið vopn, þjálfun og upplýsingar, samkvæmt CNBC, sem vitnar í Sameinuðu þjóðirnar. Þegar sjóræningjar rændu skipinu Eureka í maí fóru þeir fram á tíu milljónir dala í lausnargjald. Áður höfðu þeir rænt kínversku fiskiskipi en fyrir það eru sjóræningjarnir taldir hafa fengið 1,2 til 1,5 milljónir dala í lausnargjald. Þá eru sjóræningjarnir sagðir hafa lagt sérstaka áherslu á það að ræna olíuflutningaskipum, samhliða auknu olíuverði vegna stríðsins gegn Íran. Það hefur einnig verið auðveldað þar sem skipunum er gjarnan siglt nær ströndum Sómalíu en áður, vegna árása Húta, sem njóta stuðnings klerkastjórnarinnar í Íran.
Sómalía Jemen Skipaflutningar Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Fleiri fréttir Sjóræningjar tóku tyrneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Sjá meira