Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Bjarki Sigurðsson skrifar 20. ágúst 2026 22:01 Steinar Ingi Kolbeins, Magnea Gná Jóhannsdóttir, María Malmquist og Jóhannes Óli Sveinsson voru gestir Pallborðsins í dag. Vísir/Lýður Valberg Möguleg Evrópusambandsaðild var rædd frá sjónarhorni ungs fólks í Pallborðinu á Vísi í dag. Þátttakendur minntust meðal annars á hvað myndi gerast yrði íslenskur efnahagur fyrir áfalli og stöðu landbúnaðar.
Tveir þátttakenda ætla að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni eftir níu daga og tveir ætla að segja nei. Umræðurnar fóru um víðan völl og ræddu gestir mikið um hvað þyrfti að felast í mögulegum aðildarsamningi til þess að hann þætti ásættanlegur. Þar var meðal annars minnst á undanþágur frá sjávarútvegsstefnunni og í landbúnaði. „Það er hálfkostulegt að fylgjast með fulltrúum flokka sem hafa stýrt síðustu fjörutíu ár, jafnvel verið kjörnir fulltrúar á þeim tíma, vera allt í einu mjög hugulsamir um íslenska bændur. Staðan í greininni er sú að meðalaldur bænda hefur hækkað um tuttugu ár á síðustu fjörutíu árum. Þeir hafa farið úr átta prósentum af þjóðinni í tvö prósent. Ég myndi vilja sjá hvernig samningurinn liti út svo það sé hægt að leggja heildarmat á þetta. Inngangan má aldrei snúast um að við séum að fórna íslenskum bændum og íslenskri framleiðslu fyrir ódýrari mat,“ sagði Jóhannes Óli Sveinsson, formaður Ungs jafnaðarfólks. Hér fyrir neðan má sjá Pallborðið í heild sinni. Ekki kræsilegt Nei-arar sögðust ekki geta sagt já við neinum samningi gangi Ísland til viðræðna. „Ef við göngum í yfirþjóðlegt ríkjabandalag, sem hefur það í för með sér að við þurfum að breyta öllum okkar lögum og reglum og aðlaga að Evrópusambandinu. Að lög og reglur í Evrópu gildi ofar íslenskum lögum. Þessi gjörningur, að líkja honum við það að skoða matseðil, fá deit með Kylie Jenner eða skoða íbúð. Mér finnst það ekki mjög kræsilegt,“ sagði Steinar Ingi Kolbeins, fyrrverandi aðstoðarmaður ráðherra og ungur Sjálfstæðismaður. Vill komast á húsnæðismarkað María Malmquist, varaformaður Uppreisnar, sagði ljóst að innganga í Evrópusambandið myndi skila lægri vöxtum. „Við gætum sparað heimilunum hundrað þúsund krónur á mánuði eða meira. Það liggur fyrir að það væri ódýrara að fara í búð og versla í matinn. Samkeppni myndi aukast, það kæmu erlendir fjárfestar og það gæti gert svo mikið fyrir okkur. Ég er tvítug, ég er að horfa á framtíðina mína og ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán og farið út á húsnæðismarkað á næstunni. Ég trúi því virkilega að innganga í Evrópusambandið gæti bjargað því,“ sagði María. Ekki sömu viðbrögð Magnea Gná Jóhannsdóttir, varaborgarfulltrúi Framsóknar, óttast að missa peningastefnulegt vald til Brussel. „Það getur komið uppskerubrestur og áföll sem eru ekki endilega þau sömu og í Evrópu. Auðvitað hafði Covid áhrif á allan heiminn. En loðnubrestur hefði ekki sömu áhrif á Þýskaland eða Frakkland. Það er þannig að Seðlabanki Evrópu myndi ekki bregðast neitt sérstaklega við því fyrir Ísland,“ sagði Magnea.
Pallborðið Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Sjá meira