„Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ „Þessi vegferð hefst eiginlega ekki raunverulega fyrr en í upphafi tuttugustu aldar, þegar virkilega koma fram stjórnmálahreyfingar og stjórnmálahugmyndir um að það væri best fyrir Íslendinga að slíta samstarfinu við Dani,“ segir Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur sem er gestur dagsins í hlaðvarpinu Vísir að viðræðum. Innlent 19.8.2026 12:30
Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Lögrétta, félag laganema við Háskólann í Reykjavík, stóð fyrir pallborðsumræðum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið í dag. Innlent 19.8.2026 11:30
Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fulltrúar rússneskra stjórnvalda segjast ekki hafa neinn áhuga á því að hafa áhrif á þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi 29. ágúst um það hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Rússar hafa ítrekað verið sakaðir um að reyna að hafa áhrif á kosningar og atkvæðagreiðslur í Evrópu, meðal annars í Brexit-atkvæðagreiðslunni 2016. Innlent 19.8.2026 01:01
Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Peningastefnunefnd Seðlabankans kynnir vaxtaákvörðun sína á morgun. Markaðurinn fylgist að venju grannt með en að þessu sinni hafa aðilar vinnumarkaðarins og fylkingarnar í ESB-málinu einnig sérstaka ástæðu til að leggja við hlustir. Viðskipti innlent 18. ágúst 2026 14:28
Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir fundarferð sína um landið í aðdraganda þjóðaratkvæðis ganga vel og skapa tækifæri fyrir kjósendur að hittast, ræða málin og heyra skoðanir hver annars. Hún tekur fyrir þær háu tölur sem nefndar hafa verið um kostnað Íslands við aðild og segir upphæðina í raun mun lægri. Innlent 18. ágúst 2026 12:18
Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Breskur hagfræðiprófessor sem sat í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands eftir hrun segir Ísland eiga heima í evrusvæðinu. Upptaka evru geti aukið stöðugleika og gerði það afar ólíklegt að hrun eins og það sem varð árið 2008 endurtæki sig. Viðskipti innlent 18. ágúst 2026 11:33
Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Fréttastofa Vísis verður reglulega með Pallborð fram að þjóðaratkvæðagreiðslunni um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Fyrsta Pallborðið fór fram klukkan 14 í dag þar sem fulltrúar tveggja já-hreyfinga og tveggja nei-hreyfinga tókust á um helstu álitaefni Evrópuumræðunnar. Innlent 18. ágúst 2026 10:59
Allt gert til að stöðva birtinguna Vorið 2009 tók við ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar, í kjölfar bankahrunsins. Eitt umdeildasta verkefni hennar varð umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Jón Bjarnason sat í stjórninni sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þótt hann væri sjálfur eindreginn andstæðingur aðildar. Innlent 17. ágúst 2026 17:48
Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið Íslendingar ganga að kjörborðinu þann 29. ágúst til að ákveða framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Í aðdraganda stórra sögulegra ákvarðana kraumar gjarnan óvissa og kvíði í samfélaginu og upplýsingaóreiða fer á flug. Lífið 17. ágúst 2026 15:00
Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Rúm sextán þúsund hafa greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram þann 29 ágúst. Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu segir utankjörfundaratkvæðagreiðsluna ganga vel. Það sé mikill áhugi. Innlent 17. ágúst 2026 13:36
Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu Erfitt er fyrir kjósendur að átta sig á því hvað þeir eru að greiða atkvæði um þann 29. ágúst næstkomandi vegna upplýsingamengunar frá báðum fylkingum segir stjórnmálafræðingur. Þær tileinki sér báðar ákveðna anga popúlisma. Innlent 17. ágúst 2026 12:02
Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið fer fram þann 29. ágúst. Fylgst verður með nýjustu tíðindum í aðdraganda atkvæðagreiðslu í Evrópuvaktinni hér að neðan. Innlent 17. ágúst 2026 10:39
Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Færsla þar sem æðruleysisbæninni hafði verið breytt í svokallaða „krónuleysisbæn“ var birt í dag, sunnudaginn 16. ágúst, á Facebook-síðu Viðreisnar en henni var skömmu seinna eytt út. Framkvæmdastjóri Viðreisnar segir ástæðuna einfaldlega þá að viðbrögðin við færslunni hafi verið verri en búist var við en að það hafi aldrei verið ætlunin að særa neinn með þessari uppfærðu útgáfu af bæninni. Innlent 16. ágúst 2026 22:33
Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra telur að deilur sem upp komi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu sem þjóðin standi frammi fyrir þann 29. ágúst séu ekki af því tagi að landsmenn láti tilfinningarnar bera sig ofurliði. Þvert á móti sé tilfinningahiti fólks almennt minni en gengur og gerist í kosningum. Innlent 16. ágúst 2026 17:43
Það er jóker í spilinu Skoðanakannanir síðustu vikna virðast benda til þess að sífellt fleiri kjósendur séu búnir að gera upp hug sinn fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu eftir því sem hlutfall óákveðinna fer lækkandi. Þá virðist einnig sem hægt og rólega saxist á það forskot sem já-hliðin naut þegar mælingar hófust fyrst eftir að tilkynnt var um þjóðaratkvæðið. Innlent 16. ágúst 2026 14:56
Sérstaða Íslands útilokar að líkindum aðild að ESB Um samningsmarkmið í hugsanlegum aðildarviðræðum við ESB verður að tala opið og skýrt um sjávarútvegsmálin. Dæmi um skort á þessu er að finna í meirihlutaáliti utanríkismálanefndar - það er fulltrúa ríkisstjórnarflokkanna - á tillögu utanríkisráðherra um að haldið verði þjóðaratkvæði um aðildarviðræður við ESB. Umræðan 16. ágúst 2026 14:44
Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Greiningardeild ríkislögreglustjóra fylgist grannt með gerviaðgöngum á samfélagsmiðlum og grunsamlegum vefsíðum og athuga hvort erlendir aðilar sigli þar undir fölsku flaggi til að að ýta niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar um ESB í aðra hvora áttina. Innlent 16. ágúst 2026 14:01
Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Miðflokksmenn eru helmingi líklegri til að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið en Sjálfstæðismenn. Innlent 15. ágúst 2026 15:41
„Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Umhverfis- og orkumálaráðherra segir engan vafa í sínum huga að möguleikar Íslands til að verja hagsmuni sína hvað varðar losunarheimildir í flugsamgöngum væru meiri innan ESB, jafnvel þó Ísland væri aðeins umsóknarríki. Rík hefð hafi myndast fyrir samstöðumenningu í stjórnarfyrirkomulagi ESB. Innlent 15. ágúst 2026 14:01
Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Miðað við nýjustu kannanir bendir allt til þess að þátttakan sjálf muni skipta mestu máli í komandi þjóðaratkvæðagreiðslum að mati prófessors í stjórnmálafræði. Yngra fólk hallist meira að já-inu en sé sömuleiðis talið ólíklegra til að mæta á kjörstað. Innlent 15. ágúst 2026 12:01
Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Bændur búa sig undir baráttu gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Búnaðarþing hefur hafnað því að aðildarviðræður verði teknar upp að nýju og á næstu dögum hefja Bændasamtökin fundarherferð um landið til að kynna sinn málstað. Innlent 14. ágúst 2026 19:19
Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum Ekki er marktæktur munur á jáurum og neiurum samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup sem gefinn var út nú í dag. Ögn fleiri eru hlynnt áframhaldandi viðræðum en munurinn er tölfræðilega minniháttar. Innlent 14. ágúst 2026 18:33
Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum „Ég heyri utan að mér, að þar sem ég hafi verið staðinn að verki við að hlýða á erindi Dr Carls Baudanbacher á fundi í gamla Sjallanum, hljóti ég að vera genginn í björg andstæðinga Evrópusambandsaðildar. Þá er illa fyrir okkur komið, ef menn mega ekki hlusta á meinta andstæðinga, án þess að kalla yfir sig fordæmingu af einhverju tagi.“ Innlent 14. ágúst 2026 16:41
Bændur segja nei 95 prósent fulltrúa á Bændaþingi hafa samþykkt ályktun þess efnis að Búnaðarþing leggist gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu og þar með að hefja á ný viðræður um aðild. Innlent 14. ágúst 2026 16:08