Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Sindri Sverrisson skrifar 21. ágúst 2026 07:31 Tottenham ætlar að efla sóknarleik sinn með því að landa Savinho frá Manchester City. Getty/James Gill Manchester City hefur samþykkt tilboð frá Tottenham Hotspur í brasilíska kantmanninn Savinho og gangi kaupin eftir munu Spurs hafa varið yfir 300 milljónum punda í leikmenn í sumar. Félagið ætlar hins vegar einnig að landa öðrum leikmanni City; Omar Marmoush.
Ekki er hægt að segja að hinn 22 ára gamli Savinho hafi slegið í gegn tímabil sín tvö hjá City enda oftar en ekki í hlutverki varamanns, undir stjórn Pep Guardiola. Savinho hefur aðeins skorað tvö mörk í 53 leikjum í ensku úrvalsdeildinni hingað til en hann hefur verið lengi í sigti Tottenham sem reyndi einnig að fá hann síðasta sumar. City greiddi 30,8 milljónir punda fyrir Savinho árið 2024, þegar félagið keypti hann frá franska félaginu sem er í eigu City Football Group líkt og Manchester City. Kaupverðið núna er hins vegar 75 milljónir punda, auk 10 milljóna punda viðbótargreiðslu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, sem gerir Savinho tæplega þrefalt dýrari en fyrir tveimur árum. Hann yrði dýrasti leikmaður sem City hefur selt. 🚨 Tottenham Hotspur reach agreement in principle with Manchester City to sign Savinho. Deal for 22yo Brazil winger £75m + £10m add-ons (£5m of bonuses highly achievable). #THFC to land main target & #MCFC make record sale. W/ @GuillermoRai_ @TheAthleticFC https://t.co/phndbyxbDL— David Ornstein (@David_Ornstein) August 21, 2026 Savinho mun nú gangast undir læknisskoðun og svo væntanlega skrifa undir langtímasamning við Tottenham. Félagið heldur áfram að reyna að fá Egyptann Omar Marmoush frá City og samkvæmt BBC ganga viðræður vel. City keypti Marmoush frá Frankfurt í byrjun síðasta árs en hann átti erfitt uppdráttar á síðustu leiktíð. Tottenham hefur þegar varið samtals 185 milljónum punda í miðjumennina Mateus Fernandes frá West Ham og Sandro Tonali frá Newcastle, auk þess að kaupa miðvörðinn Jan Paul van Hecke frá Brighton og fá Marcos Senesi og Andrew Robertson frítt frá Bournemouth og Liverpool. Fyrsti leikur tímabilsins hjá Tottenham er á morgun þegar liðið mætir Brentford á útivelli klukkan 16:30.
Enski boltinn Mest lesið Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Þjóðarhöllin á að rísa í janúar 2030 Sport Kristall fékk tveggja leikja bann Fótbolti Arnar um pressuna: „Það vilja allir núna vera með hnífana úti“ Sport Lebron talaði hreint út Körfubolti Fleiri fréttir Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn Sjá meira