Erlent

Gerðu tvö­falda á­rás á verslunar­mið­stöð fjarri víg­línunni

Samúel Karl Ólason skrifar
Að minnsta kosti fimm eru látnir og margir tugir særðir eftir árásina.
Að minnsta kosti fimm eru látnir og margir tugir særðir eftir árásina. Almannavarnir Úkraínu

Að minnsta kosti fimm eru dánir og níutíu særðir, þar af margir alvarlega, eftir að drónaárás var gerð á verslunarmiðstöð í Kryvyi Rih í Úkraínu í dag. Að minnsta kosti tveimur rússneskum sjálfsprengidrónum var flogið á verslunarmiðstöðina þegar fjöldi manns var þar inni.

Eldur kviknaði vegna árásarinnar og eru skemmdirnar á verslunarmiðstöðinni miklar.

Notast var við þotuknúna sjálfsprengidróna, samkvæmt myndböndum af vettvangi. Árásin var gerð um klukkan 16:30 að staðartíma og í tveimur bylgjum. Seinni bylgjan er sögð hafa verið gerð um hálftíma eftir að fyrsti dróninn, eða drónarnir, skullu á verslunarmiðstöðinni.

Á ensku eru árásir sem þessar kallaðar „Double-Tap“ árásir og eru þær iðulega gerðar af hryðjuverkamönnum víðsvegar um heiminn og er þeim ætlað að valda miklu mannfalli meðal viðbragðsaðila sem bregðast við fyrstu árásinni. Rússar voru á árum áður ítrekað sakaðir um árásir sem þessar í Sýrlandi en þeir hafa einnig gert fjölmargar í Úkraínu.

Sjá einnig: „Veiddu“ grænmetissala með dróna

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir árásina vera viðurstyggilega. Þetta sé ekkert nema hryðjuverkaárás og alþjóðasamfélagið þurfi að bregðast við.

Kryvyi Rih er í Dnipropetrovsk-héraði í suðurhluta Úkraínu en er tiltölulega langt frá víglínunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×