Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Stefán Árni Pálsson skrifar 22. ágúst 2026 08:01 Paul Gascoigne er einn besti leikmaður sögunnar á Englandi en utan vallar hefur leikur hans verið verri. Paul Gascoigne, einn þekktasti knattspyrnumaður Englands fyrr og síðar, hefur rifjað upp erfiða tíma úr lífi sínu og meðal annars sagt frá því að hann hafi einu sinni sleppt því að sofa í sex vikur.
Gascoigne ræddi þetta í ítarlegu viðtali við Andrew Gold í hlaðvarpinu Heretics. Hlaðvarpið var tekið upp fyrir um mánuði síðan. Þar fer hann yfir ýmis erfið tímabil í lífi sínu og lýsir meðal annars því hvernig langvarandi svefnleysi hafði gríðarleg áhrif á hann. Hann segist að lokum hafa orðið geðrofssjúkur eftir að hafa verið án svefns svo lengi. Í þættinum segir hann einnig frá ýmsum undarlegum upplifunum sem hann varð fyrir á þessu tímabili, meðal annars því að sjá og heyra hluti sem voru ekki raunverulegir. Áföll í æsku Viðtalið snýst þó ekki eingöngu um svefnleysið. Gascoigne ræðir þar opinskátt um áföll úr æsku, baráttu sína við áfengisvandamál og geðrænan vanda auk þess sem hann rifjar upp ýmis eftirminnileg augnablik úr ferlinum. Gascoigne, sem varð heimsfrægur fyrir frammistöðu sína með enska landsliðinu og félögum á borð við Newcastle United, Tottenham og Lazio, hefur um árabil verið opinskár um erfiðleikana sem fylgdu lífi hans utan knattspyrnuvallarins. Viðtalið hefur vakið mikla athygli og gefur nokkuð óvenjulega innsýn í líf leikmannsins sem eitt sinn var meðal skærustu stjarna heims. Hér má sjá brot úr þættinum þar sem Gazza ræðir þennan sex vikna kafla í sínu lífi. Paul Gascoigne says he once went six weeks without sleeping and shares stories about the things he experienced along the way. 😳 pic.twitter.com/JLnBx8Ya05— Andrew Gold (@AndrewGold_ok) August 19, 2026 Hér að neðan má sjá hlaðvarpið í heild sinni.
Enski boltinn Mest lesið Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Þjóðarhöllin á að rísa í janúar 2030 Sport Kristall fékk tveggja leikja bann Fótbolti Arnar um pressuna: „Það vilja allir núna vera með hnífana úti“ Sport Lebron talaði hreint út Körfubolti Fleiri fréttir Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn Sjá meira