Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. ágúst 2026 23:00 Jean-Philippe Mateta hefur átt stóran þátt í uppgangi Crystal Palace undanfarin ár. Hann vill nú komast frá félaginu. getty/Lewis Storey Jean-Philippe Mateta, framherji Crystal Palace, heldur því fram að lokaár samnings síns við félagið sé ógilt. Hann fór með málið til Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA.
Sambandsdeildarmeistarar Palace töpuðu 2-0 fyrir Everton á útivelli í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Mateta var í byrjunarliði Palace í dag en franski landsliðsmaðurinn virðist ekki vera of spenntur fyrir því að vera áfram í herbúðum Lundúnaliðsins. BBC greinir frá því að Mateta haldi því fram að síðustu tíu mánuðir samnings hans við Palace séu ógildir. Mateta kom upphaflega til Palace á láni frá Mainz 05 í janúar 2021. Félagið keypti hann ári seinna. Þá skrifaði Mateta undir fjögurra og hálfs árs samning við Palace með möguleika á árs framlengingu. Það ákvæði var virkjað 2024 og því á samningur Matetas að renna út eftir þetta tímabil. Hann heldur því hins vegar fram að þetta síðasta ár sé ógilt. Talið er að málið hafi verið tekið fyrir af óháðum gerðardómi samkvæmt reglum ensku úrvalsdeildarinnar. Sá ku hafa úrskurðað að samningur Matetas sé bindandi, án þess að það hafi verið staðfest, en hann á þá að hafa leitað til FIFA. Svar Alþjóða knattspyrnusambandsins hafi verið á þá leið að það væri ekki innan lögsögu þess að ógilda samninginn. Mateta hefur ekki farið leynt með áhuga sinn á að reyna fyrir sér hjá stærra félagi. Í janúar var hann nálægt því að ganga í raðir AC Milan en meiðsli komu í veg fyrir þau félagaskipti. Hinn 29 ára Mateta hefur skorað 62 mörk í 202 leikjum fyrir Palace. Hann vann ensku bikarkeppnina með liðinu 2025 og Sambandsdeildina í vor.
Enski boltinn Crystal Palace FC FIFA Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Enski boltinn Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Enski boltinn Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Formúla 1 Fleiri fréttir Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Sjá meira