„Eiginlega bara óforskammað“ Eiður Þór Árnason skrifar 24. ágúst 2026 20:58 Kári Sigurðsson setur spurningamerki við það hvort þessum aðgerðum fylgi mikill fjárhagslegur sparnaður fyrir borgina. aðsend Hópi skólaliða hefur verið sagt upp störfum í grunnskólum Reykjavíkurborgar og þrifaverkefnum þeirra útvistað til einkafyrirtækja. Þá hefur starfshlutfall annarra verið skert.
Þetta segir Kári Sigurðsson, formaður stéttarfélagsins Sameykis. Enn sé unnið að því að ná utan um umfang aðgerðanna og borgin hafi ekki svarað fyrirspurn stéttarfélagsins. RÚV greindi fyrst frá. Kári fordæmir aðgerðirnar og segir þær í engu samræmi við yfirlýsingar borgarmeirihlutans um að grunnþjónustu verði hlíft í aðhaldsaðgerðum. Skólaliðar sinni ekki einungis þrifum og séu til staðar fyrir nemendur. Ljóst sé að starfsfólkið sem komi í staðinn verði ekki hluti af umhverfi barnanna með sama hætti. „Þarna eru börn og ungmenni að missa mikilvæga aðila í skólunum frá sér.“ Hefur áhrif á nítján skóla Í júlí samþykkti Innkaupa- og framkvæmdaráð Reykjavíkurborgar að taka tilboðum Daga og Sólar í þrif á fjölda skóla. Melaskóli er meðal þeirra skóla sem útboðið náði til.Vísir/Egill „Þetta eru nítján skólar í heildina sem er verið að útvista þrifunum í,“ segir Kári. Þeirra á meðal eru Grandaskóli, Hagaskóli, Melaskóli, Brúarskóli, Hvassaleitisskóli, Vesturbæjarskóli og Klettaskóli. Kári bendir á að vinna við útboðið hafi byrjað í tíð fyrri borgarstjórnar. Hann bíður enn eftir því að fá staðfestar tölur um uppsagnir frá borginni og segir að fyrirspurn um aðhaldsaðgerðir hafi staðið ósvöruð frá því í byrjun júlí. Sé ekki í samræmi við fullyrðingar meirihlutans Kári segir þessar aðgerðir í engum takti við það sem fulltrúar meirihlutans hafi talað um. „Þarna ertu ekkert að minnka einhverja yfirbyggingu. Þarna ertu bara að ráðast beint að grunnþjónustunni, þú ert að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur hjá borginni. Þú ert að ráðast á nærþjónustuna þar sem þú ert með fólk sem er að vinna störf sem eru mjög mikilvæg og eru svo miklu meira heldur en bara störf við þrif í skólunum.“ Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og meirihlutinn í borginni hefur boðað aðhaldsaðgerðir. Vinna við umrædd útboð hófust í tíð fyrri borgarstjórnar.Vísir/Lýður Valberg Kári setur spurningamerki við það hvort þessum aðgerðum fylgi mikill fjárhagslegur sparnaður fyrir borgina. Skólaliðar séu ekki hálaunafólk og nýsamþykktir samningar um þrif í umræddum skólum hljóði upp á um 176 milljónir króna á ári. Fordæmir skort á svörum „Við erum mjög áhyggjufull yfir því þegar verið er að útvista svona verkefnum,“ segir Kári um afstöðu Sameykis og annarra stéttarfélaga starfsfólks í opinberri þjónustu. „Það er náttúrulega ekkert samráð og ég held að yfirsýnin sé afskaplega lítil einhvern veginn. Það er bara verið að pikka og plokka í eitthvað núna.“ Sameyki fari fram á að borgaryfirvöld rökstyðji þessa ákvörðun með greinagóðum hætti. Félagið hafi fyrst óskað eftir upplýsingum um fyrirhugaðar aðhaldsaðgerðir í byrjun júlí. „Það er eiginlega bara óforskammað að vera ekki búið að svara þessu,“ segir Kári. „Ef það á að segja að þetta sé sparnaður, þá verður að sýna fram á að þetta sé sparnaður og að þetta sé ekki skerðing á grunnþjónustu í leiðinni. Vegna þess að þau voru mjög skýr um það í aðdraganda kosninganna og þegar þau tóku við. Ég get séð hvorugt í þessari aðgerð.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Reykjavík Skóla- og menntamál Borgarstjórn Vinnumarkaður Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Fleiri fréttir Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Sjá meira