Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Aron Guðmundsson skrifar 26. ágúst 2026 08:00 Jón Halldórsson er formaður HSÍ Vísir/Sigurjón Egypska landsliðið í handbolta er hætt við að koma hingað til lands og spila tvo æfingaleiki við Ísland í aðdraganda HM í janúar á næsta ári. Ákvörðun Egyptanna kom HSÍ á óvart. Heiðursmannasamkomulag var svikið.
Egypska landsliðið í handbolta er hætt við að koma hingað til lands og spila tvo æfingaleiki við Íslands skömmu fyrir HM í janúar á næsta ári. Áfall í undirbúningi liðsins en leikirnir áttu að fara fram nokkrum dögum fyrir fyrsta leik strákanna okkar á HM. „Þetta kom okkur á óvart og er leiðinlegt. Við vorum búnir að semja við Egyptana um að fara fyrst til þeirra, sem við gerðum, og fá svo Egyptana heim til þess að geta verið lengur hér heima í aðdraganda HM. Egyptar eru sterk þjóð, góðir í handbolta og vorum við því mjög spennt fyrir þessu verkefni. En þetta heiðursmannasamkomulag sem við vorum með okkar á milli, þeir sviku það,“ segir Jón Halldórsson formaður HSÍ í samtali við Stefán Árna Pálsson, íþróttafréttamann Sýn. Það getur reynst erfitt að finna verðugan andstæðing fyrir Egyptana sem hefðu verið frábær andstæðingur til þess að máta sig við fyrir HM. Margar af sterkustu þjóðum handboltans eru nú þegar búnar að geirnegla sinn undirbúning. „Þetta er bara búið, við ætlum ekkert að hengja haus yfir þessu. Við erum búin að vera vinna að því núna í nokkrar vikur að finna landslið til þess að koma og spila við okkur hér í janúar. Það er enn markmiðið okkar. Að spila tvo heimaleiki hér fyrir framan þjóðina í janúar. Við róum öllum árum að því. En Egyptarnir, eins og þú segir sjálfur, þetta er góð handboltaþjóð og hefði verið frábær undirbúningur fyrir HM fyrir landsliðið. „Já þetta var draumaundirbúningur. Við vorum búin að teikna þetta svoleiðis upp. En þetta eru bara aðstæðurnar sem við lendum í og eigum við ekki að segja að þær séu óstjórnanlegar. Þá þurfum við bara að bregðast við því. Við erum með öflugt teymi. Snorri Steinn og hans fólk í liðinu leitar að réttu lausninni fyrir liðið.“ Eru þið að ræða við einhverjar þjóðir núna? „Snorri Steinn er núna að kanna þessa hluti. Það er ekkert fast í hendi en ég geri þó fastlega ráð fyrir því að það verði leikir hér heima í janúar. Þá aðallega til þess að lengja tímann sem strákarnir hafa hér heima saman í aðdraganda HM. Stórmót taka langan tíma. Eins og á síðasta Evrópumóti vorum við 31 dag úti. Það væri þægilegt að geta stytt það um viku.“ Viðtalið við Jón Halldórsson, formann HSÍ, sem sýnt var í Sportpakkanum á Sýn í gær má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni.
HSÍ Landslið karla í handbolta HM karla í handbolta 2027 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira