Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 26. ágúst 2026 12:02 Starfsfólkið fékk reisupassa í gær. Vísir/Lýður Valberg Þrjátíu og tveimur starfsmönnum Reykjavíkurborgar sem fengu boð um ný eða breytt störf við hópuppsögn í gær var boðið lakari kjör að sögn formanns Sameykis sem segir starfsmennina hafa fengið afar skamman tíma til að ákveða næstu skref.
Í gær var tugum starfsmanna Reykjavíkurborgar sagt upp störfum í hópuppsögn sem nær til velferðar-, frístunda-, og skólasviða. Breytingarnar leiða til uppsagna áttatíu og sex starfsmanna. Að sögn borgarstjóra eiga breytingarnar að skila hagræðingu sem nemur 900 milljónum króna á ári, samkvæmt nýju skipuriti þar sem stjórnendum og millistjórnendum er fækkað og félags- og húsnæðisþjónusta með aðstöðu á einum stað í stað fjögurra svæðismiðstöðva. Af þeim áttatíu og sex starfsmönnum sem sagt var upp störfum fá þrjátíu og tveir starfsmenn boð um ný eða breytt störf en fimmtíu og fjórir munu ekki fá áframhaldandi starf. Kári Sigurðsson formaður Sameykis gefur lítið fyrir starfstilboðið til þessara þrjátíu og tveggja starfsmanna. „Þetta er náttúrulega bara fólk sem er boðið ný störf á lakari kjörum og með nýjar starfslýsingar. Tímaramminn sem fólk fær að melta þetta tilboð, ef það má komast svo að orði, það fær út fimmtudaginn til að melta þetta.“ Starfsfólkið hafi fengið gögn um málið í gærmorgun þegar það mætti til vinnu. „Og munnlega skýringar um laun þeirra sem ég ætla að fullyrða að öll þau sem boðið var annað starf, þau eru klárlega með lakari kjörum og nýjum starfsheitum.“ Kári er efins um að boðið til starfsmannana muni skila sér í hagræðingu til borgarinnar. „Og nota bene, þegar það er bráðabirgðaröðun á nýjum starfsheitum hjá borginni þá þýðir það á endanum að þau þurfa að fara í gegnum starfsmat og þá kemur náttúrulega að aðkomu stéttarfélagsins aftur að borðinu og það sér ekkert fyrir endann á því hvaða kostnað það mun á endanum kosta borgina aftur til baka.“
Stéttarfélög Reykjavík Rekstur hins opinbera Borgarstjórn Vinnumarkaður Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira