„Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Aron Guðmundsson skrifar 26. ágúst 2026 16:02 Jordan í leik þrjú gegn Utah Jazz í treyjunni sem verður nú boðin upp. Vísir/Getty Treyja sem Michael Jordan klæddist í þriðja leik úrslitaeinvígis á einu af hans sögufrægustu tímabilum í NBA deildinni í körfubolta er að fara á uppboð og gæti orðið verðmætasta körfuboltatreyja sögunnar.
Um treyju sem Michael Jordan klæddist í þriðja leik úrslitaeinvígis Chicago Bulls og Utah Jazz tímabilið 1998 er að ræða. Hún er verðmetin á 10 til 15 milljónir Bandaríkjadala. Því sem jafngildir 1.2 til 1.8 milljarði íslenskra króna. „Þetta er gripur sem safnarar bíða heila ævi eftir. Ómetanlegur gripur sem teygir anga sína langt út fyrir körfubolta. Er hluti af alþjóðlegri menningarsögu,“ segir Caitlin Donovan, starfsmaður Joopiter uppboðshaldarans. Treyjan sem um ræðirMynd: Joopiter Tímabilið hefur verið kallað „hinnsti dans“ þáverandi leikmannahóps Chicago Bulls og var farið náið ofan í saumana á því í heimildarþáttaröð Netflix frá árinu 2020. Þetta var lokatímabil Michael Jordan með Chicago Bulls og varð liðið meistari þriðja tímabilið í röð. Á þessu tímabili vann Michael Jordan sinn síðasta NBA meistaratitil á ferlinum en alls urðu þeir sex talsins. Í umræddum þriðja leik Chicago Bulls gegn Utah Jazz í úrslitaeinvíginu 1998 skoraði Michael Jordan 24 stig. Engin fordæmi eru fyrir því að hvíta treyja Chicago Bulls frá þessum tíma, sem Michael Jordan klæddist í einhverjum af leikjum úrslitaeinvígisins 1998, hafi ratað á uppboð. Því er um afar fágæta eign á uppboði að ræða. Fari hún á uppsettu verði verður hún hins vegar langt frá því verðmætasta treyja sögunnar. Verðmætasta treyja sögunnar er treyja sem hafnaboltakappinn Babe Ruth klæddist í leik 3 í úrslitaeinvígi árið 1932. Hún seldist fyrir rúmar 24 milljónir Bandaríkjadala á uppboði, tæpa þrjá milljarða íslenskra króna.
NBA Mest lesið Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Fótbolti „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fótbolti UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fótbolti Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Sport Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf Segir Horner vera að trufla Ferrari Formúla 1 Fleiri fréttir Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Sjá meira