Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 26. ágúst 2026 20:38 Svandís Egilsdóttir segir starfsfólk borgarinnar slegið yfir uppsögnum og hafa áhyggjur af þjónustuskerðingu. Vísir/Bjarni Fjöldauppsagnirnar hjá Reykjavíkurborg munu bitna á viðkvæmustu hópunum að mati fyrrum fagstjóra sem segir það lítilsvirðingu að tala um annað. Gærdagurinn hafi verið sorglegur og ljóst sé að farið var af stað í miklum hamagangi.
Í gær var tugum starfsmanna Reykjavíkurborgar sagt upp störfum í hópuppsögn sem nær til velferðar-, frístunda-, og skólasviða. Breytingarnar leiða til uppsagna áttatíu og sex starfsmanna en 32 verður boðin störf í breyttri mynd, á lakari kjörum að sögn formanns Sameykis. Stjórnendum fækkað Að sögn borgarstjóra eiga breytingarnar að skila hagræðingu sem nemur 900 milljónum króna á ári, samkvæmt nýju skipuriti þar sem stjórnendum og millistjórnendum er fækkað og félags- og húsnæðisþjónusta með aðstöðu á einum stað í stað fjögurra svæðismiðstöðva. Klippan úr sjónvarpsfréttum Sýnar má sjá hér fyrir neðan. Svandís Egilsdóttir fagstjóri grunnskóla hjá vesturmiðstöð sem rekin var í gær segir breytingarnar fela í sér mikla óvissu og skerðingu á þjónustu en borgarstjóri fundaði með starfsfólki í dag. „Á fundinum kom allavega fram í dag að flóttafólk, það er óvissa þar, svo eru það bara viðkvæmustu hóparnir í félagsþjónustu og í skólaþjónustunni, þegar fólki er gert að fara út með þessum hraða.“ Fundurinn verið vandræðalegur Ljóst sé að farið hafi verið í breytingarnar í miklum hamagangi og segir Svandís vinnubrögðin lítilsvirðandi, vilji hafi verið til samráðs við starfsfólk um breytingar eftir að því hafi verið sagt upp. „Það hljómaði þannig í hádeginu í dag á þessum vandræðalega fundi verð ég að segja,“ segir Svandís. Hvers vegna var hann vandræðalegur? „Af því að hljóð og mynd fer bara ekki saman. Það er vandræðalegt þegar stjórnmálamenn koma inn á sviðið, hvort sem það er í menntamálaráðuneytinu eða hjá borginni og ætla að breyta öllu og laga allt.“ „Það að segja það að það verði ekki þjónustufall er ofsalega skrítið því við vitum það að svona stórar breytingar munu hafa áhrif á fólkið sem vinnur að breytingunum og þjónustar börnin. Það finnst mér í raun og veru bara lítilsvirðandi.“
Reykjavík Rekstur hins opinbera Vinnumarkaður Borgarstjórn Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira