Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 27. ágúst 2026 12:04 Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins. Vísir Verðbólga hefur ekki verið meiri í tvö ár og mælist nú 5,6 prósent. Þar með eru forsendur til að segja upp kjarasamningum um næstu mánaðamót. Forsvarsmenn Starfsgreinasambandsins og Samtaka iðnaðarins segja stöðuna alvarlega og kalla eftir sameiginlegu átaki stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins til að ná tökum á verðbólgu og vöxtum
Verðbólga hækkaði um 0,2 prósent milli mánaða og mælist nú 5,6 prósent. Það gerist þrátt fyrir að stýrivextir hafi verið hækkaðir í þrígang að undanförnu til að ná verðbólgunni niður og séu nú átta prósent. Verðbólgan er jafnframt tæpu einu prósentustigi yfir því viðmiði sem sett er í forsenduákvæðum svokallaðra stöðugleikasamninga. Þar með liggja fyrir forsendur þess að hægt verði að segja kjarasamningunum upp um næstu mánaðamót. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, segir niðurstöðuna ekki koma sér á óvart. „Þetta slær mig verulega illa, þó að vissulega hafi ég gert mér í hugarlund að þetta væri að raungerast.“ Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, tekur í sama streng. „Þetta er virkilega slæm þróun sem við horfum upp á og við höfum talað mjög skýrt um það að stærsta viðfangsefni vetrarins sé að ná stjórn á efnahagslífinu.“ Kalla eftir samstilltu átaki Vilhjálmur segir erfitt að segja til um hvort hægt verði að koma í veg fyrir að kjarasamningunum verði sagt upp. „Ég geri mér ekki grein fyrir því. Við höfum þar til 8. október til að eiga samtal við SA, stjórnvöld, sveitarfélög og verslun og þjónustu. Ef það er vilji til að sýna í verki að fólk sé tilbúið að vinna bug á þessu vandamáli, sem eru verðbólga, vextir og verðtrygging, þá er það hægt, segir Vilhjálmur“ Sigurður segir sömuleiðis að enn sé hægt að bregðast við stöðunni. „Algjörlega. Við hjá SI höfum verið skýr með það að kalla eftir þjóðarsátt við þessar aðstæður til að fara í umbætur og auka stöðugleika til langs tíma, segir Sigurður“ Hann segir slíkt kalla á samstillt átak vinnumarkaðarins og stjórnvalda. „Þá þarf að kalla saman ólíka aðila að borðinu, fulltrúa atvinnurekenda, launþega og stjórnvalda. Ef þetta á að gerast þarf skýra forystu frá stjórnvöldum því svona verkefni verður ekki leyst á formlegum fundum í Ráðherrabústaðnum, segir Sigurður.“
Verðlag Fjármálamarkaðir Seðlabankinn Atvinnurekendur Vinnumarkaður Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira