Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar 27. ágúst 2026 20:01 Nú þegar umræðan um þjóðaratkvæðagreiðsluna tröllríður öllu hef ég rekist á nokkra sem lýsa því að þeim finnist erfitt að setja sig inn í málið. Sumir segja að því meira sem þeir hlusti á og lesi sér til, þeim mun erfiðara verði að ákveða sig. Aðrir ætla að setjast niður daginn fyrir kjördag, kynna sér málið vel og taka síðan ákvörðun. Mér finnst þetta mjög skiljanlegt, enda um flókið og mikilvægt mál að ræða. Sem akademíker myndi ég aldrei mæla gegn því að fólk kynni sér málin. En sem sálfræðingur leyfi ég mér að efast um að meiri upplýsingar muni hjálpa við að taka ákvörðun af þessu tagi. Heilinn er ekki reiknivél Rannsóknir í félagssálfræði sýna að hlutlausar upplýsingar leiða ekki endilega til hlutlausari skoðana. Í frægri rannsókn sýndu Lord, Ross og Lepper (1979) að þegar stuðningsmenn ólíkra sjónarmiða lásu sömu upplýsingar um dauðarefsingar urðu þeir oft enn sannfærðari um upphaflega afstöðu sína. Skýringin á þessu er að við tökum ekki upplýsingar inn í tómt kerfi. Við túlkum þær í ljósi fyrri skoðana, sjálfsmyndar og þess hóps sem við teljum okkur tilheyra. Jafnvel þó við umbreytum ekki upplýsingum í 0 og 1, þýðir ekki að upplýsingar séu gagnslausar. Þær geta svarað mikilvægum staðreyndaspurningum. En þær segja okkur ekki sjálfkrafa hvað við eigum að vilja og velja. Það er ólíklegt að hinn almenni kjósandi geti myndað sér fullkomlega upplýsta skoðun á öllum áhrifum þess að hefja aðildarviðræður að nýju. Sérstaklega þegar stór hluti svaranna liggja í framtíðinni í síbreytilegum heimi. Áttaviti í upplýsingaþoku Þegar staðreyndirnar gefa okkur ekki eitt augljóst svar þurfum við að ákveða hversu miklu máli ólík atriði skipta okkur. Þar geta gildi vísað vegin. Samkvæmt kenningu Shalom Schwartz eru gildi tiltölulega stöðug grundvallar leiðarljós sem hafa áhrif á ákvarðanir okkar, viðhorf og hegðun. Í uppfærðri kenningu Schwartz frá 2012, sem endurbætt var til að taka betur mið af gildum fólks um allan heim, eru grunngildin 19 talsins og eru í undir og yfirflokkum sem raðast á hringlaga litróf, þar sem nálæg gildi eru samrýmanleg en andstæð gildi togast á. Til einföldunar fjalla ég hér fyrst og fremst um fjóra meginflokka Schwarts. ● Framsækni: (e. openness to change), sem tekur til sjálfræðis, örvunar og nautnar og snýst um sjálfstæða hugsun, nýjungar og áskoranir. ● Festa (e. conservation) tekur til öryggis, hefða og reglufylgni og snýst um stöðugleika og varðveislu hins viðtekna. ● Sjálfsefling (e. self-enhancement), sem tekur til valda og árangurs og snýst um eigin hag og stöðu. ●Handanhyggja (e. self-transcendence), sem tekur til velvildar og algildis, og snýst um velferð annarra og náttúrunnar. Gildin mynda tvö andstæðupör í hringnum, þar sem nálægir yfirflokkar fara vel saman en andstæð gildi togast á. Hvað segja 24.703 Evrópubúar okkur? Gildi Schwartz hafa verið könnuð í rannsóknum í áratugi og um allan heim aðhyllist fólk þessi gildi. Forgangsröðun gildanna er þó mismunandi eftir einstaklingum og löndum. Til dæmis hefur þetta verið rannsakað til að kanna afstöðu fólks til Evrópusambandsins. Dennison, Seddig og Davidov rannsökuðu árið 2021 gögn frá 24.703 einstaklingum í 13 Evrópulöndum og spurðu hvort persónuleg gildi samkvæmt kenningu Schwartz gætu hjálpað til við að skýra hverjir styðja aðild að Evrópusambandinu. Eitt gildi skar sig sérstaklega úr: algildishyggja (e. universalism). Fólk sem leggur meiri áherslu á skilning, umburðarlyndi, jafnrétti, velferð allra manna og vernd náttúrunnar er líklegra til að vera jákvætt gagnvart Evrópu. Þessir þættir tengjast síðan meiri stuðningi við aðild að ESB. Á hinn bóginn tengdust varðveislugildi (e. conservation) — til dæmis áhersla á öryggi, hefðir, samræmi og stöðugleika — við minni stuðningi við ESB. Sama gildi - sitthvor niðurstaðan En hér kemur mikilvægt atriði. Þessi rannsókn sýnir ekki að framsækið fólk eigi að kjósa já á laugardaginn, og fólk sem aðhyllist festu eigi að kjósa nei. Tengslin voru flóknari en svo. Það er líka áhugavert að fylgjast með umræðunni fyrir kosningar og hlusta eftir því hvaða gildi já- og nei-hreyfingin leggja áherslu á. Ég tel mig hafa heyrt dæmi um að höfðað sé til allra þessara fjögurra megin gilda bæði af já- og nei hreyfingunni - en með ólíkum rökum. Hér eru nokkur dæmi, en er ekki ætlað að vera tæmandi upptalning. ● Framsækni Já-hreyfingin hefur talað fyrir opnun á nýjum tækifærum til viðskipta og samstarfs með aðilda að ESB. Nei hreyfingin hefur talað fyrir því að halda fleiri tækifærum opnum með því að halda í EES samninginn. ● Festa Já hreyfingin hefur talað fyrir mikilvægi þess að styrkja varnir okkar með því að ganga í ESB á meðan nei hreyfingin telur að öryggi okkar sé betur varið utan. ● Sjálfsefling Já hreyfingin hefur talað fyrir lægri vöxtum, meiri viðskiptum og lægra matvælaverði með inngöngu í ESB. Nei hreyfingin hefur talað fyrir meiri hagvexti og lægra atvinnuleysi með því að standa utan sambandsins. ● Handanhyggja Já hreyfingin hefur talað um ESB sem friðarbandalag sem styður við aukna samvinnu á milli landa. Nei hreyfingin hefur talað fyrir samstöðu með verka og láglaunafólki með því að verja núverandi kjarasamningamódel og krefjast þess ekki að fólk flytji ef íslenskt hagkerfi kólnar, enda sé tekjujöfnuður mikill á Íslandi. Þess vegna er ekki hægt að segja að ákveðið gildi leiði sjálfkrafa til Já eða Nei. Sama gildi getur stutt ólíka niðurstöðu, eftir því hvernig fólk metur afleiðingar hvors kosts. Æfing fyrir óákveðna En þar sem gildi fólks eru almennt stöðug og fólki líður vel þegar það hegðar sér í samræmi við gildin sín, eru þau gagnlegur leiðarvísir til að taka flóknar ákvarðanir í óvissum heimi. Ef þú ert óákveðinn skaltu prófa þetta: 1. Veldu þau tvö eða þrjú gildi sem skipta þig mestu mál í gildahjóli Schwartz. 2. Skrifaðu niður hvaða rök Já-hreyfingin færir fyrir því að hennar afstaða þjóni þessum gildum. 3. Skrifaðu síðan niður hvaða rök Nei-hreyfingin færir fyrir því sama. 4. Spyrðu þig að lokum: Hvor hliðin sannfærir mig betur um að hún stuðli að þeim gildum sem mér finnst mikilvægust? Ekki spyrja bara: „Hvaða hlið hefur rétt fyrir sér?“ Spyrðu líka: „Hvaða framtíð samræmist best þeim gildum sem ég vil að móti íslenskt samfélag?“ Gildi koma ekki í stað upplýsinga. Alveg eins og svarið við ráðgátum alheimsins er ekki 42, þá ákveða gildin ekki hvort við kjósum já eða nei. En þau hjálpa okkur að meta upplýsingarnar og ákveða hvað skiptir mestu máli. Höfundur er doktor í félagssálfræði Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Gró Einarsdóttir Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Skoðun Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun