Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Stefán Árni Pálsson skrifar 27. ágúst 2026 22:16 Gísli verður með liðið næstu tvö árin. Gísli Steinar Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víkingi og hefur skrifað undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild félagsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Samningurinn gildir til ársins 2028. Gísli Steinar er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum og hefur víðtæka reynslu af þjálfun í handbolta. Hann hefur undanfarin ár stýrt 3. og 4. flokki kvenna hjá ÍBV. Þá hefur hann einnig þjálfað yngri flokka kvenna hjá Fjölni og komið að þjálfun meistaraflokks kvenna hjá félaginu. Áður en Gísli Steinar hóf störf sín hér á landi bjó hann í Noregi þar sem hann þjálfaði yngri flokka hjá Fet IL í sex ár. Víkingar tjáðu sig í dag með yfirlýsingu um þá ákvörðun að draga liðið úr efstu deild og spila í þeirri næstefstu. Hér að neðan má lesa þá yfirlýsingu: Á fundi stjórnar handknattleiksdeildar Víkings var samþykkt að óska eftir því við HSÍ að lið meistaraflokks kvenna í handbolta fengi sæti í Grill 66-deild kvenna á komandi tímabili. Beiðni Víkings hefur nú verið samþykkt af hálfu HSÍ. Það er einróma afstaða stjórnar handknattleiksdeildar að það samræmist betur metnaðarfullri vegferð félagsins að ungt lið meistaraflokks kvenna leiki í Grill 66 deild kvenna tímabilið 2026/2027. Lið Víkings samanstendur af ungum og efnilegum leikmönnum sem eru um leið metnaðarfullir og láta hag og framgang meistaraflokks kvenna sig mikið varða. Liðið er á spennandi en krefjandi stað í uppbyggingu sinni og er félaginu annt um að tryggja veg og vanda liðsins sem best, bæði innan vallar sem utan. Á sama tíma er mikill vöxtur í yngri flokka starfi Víkings, bæði hjá strákum og stúlkum, en iðkendur er nú um 550 talsins. Því er gríðarlega mikilvægt að vel sé haldið utan um uppbyggingu handboltastarfs í félaginu og er það trú handknattleiksdeildar að þessi niðurstaða sé best til þess fallin að byggja áfram upp öflugt handboltastarf í félaginu.
Olís-deild kvenna Víkingur Reykjavík Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira