Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Áróra L Davíðsdóttir skrifar 27. ágúst 2026 20:44 Valgeir Magnússon segir veikindi Haraldar Noregskonungs hafa vakið upp miklar tilfinningar hjá Norðmönnum. Samsett Mikill fjöldi fólks safnaðist saman fyrir utan Konungshöllina í Ósló í dag og beið fregna af Haraldi Noregskonungi en heilsufarsástand hans hrakar enn og er sagt „mjög alvarlegt.“ Íslendingur sem staddur er í Ósló segir að blómvendir þar í borg hafi klárast í búðum og lýsir ástandinu fyrir framan höllina eins og á þjóðhátíðardegi.
Valgeir Magnússon hefur verið með annan fótinn í Ósló síðustu fimm árin vegna vinnu og segir viðbrögð Norðmanna við fregnum af heilsu Haraldar koma sér á óvart. Hinn 89 ára Haraldur hefur legið inni á spítala síðan 17. ágúst, þar sem hann hlýtur meðferð vegna blóðsjúkdóms. Hann hefur tekið sýklalyf vegna sjúkdómsins. „Ég vissi alveg hvað hann er mikilvægur fólki en það kemur mér á óvart þetta ofboðslega magn af fólki sem kom að höllinni í dag. Það er svona af því að maður er ekki alinn upp við konungsveldi. Þá finnst manni þetta pínu skrýtið sko. Svona persónur eru bara svona fígúrur í okkar lífi,“ segir Valgeir. Valgeir býst við því að morgundagurinn í Ósló verði svipaður. Fólk muni leggja leið sína að konungshöllinni og bíða fregna af Haraldi. Sumir komi og staldri stutt við og leggi blóm á torgið fyrir framan höllina, aðrir, þar á meðal fjölmiðlar, bíði fregna. Þetta er mun meira en ég átti von á en ég tengi rosalega við tilfinningarnar. Ég finn tilfinninguna sem er í loftinu. Sonja Noregsdrottning sé komin heim í höllina og Valgeir segir það benda til þess að líðan Haraldar sé stöðug en hann býst við að morgundagurinn verði svipaður. Fólk sem hafði hugnast að kaupa blómvönd og leggja við höllina hafi lent í því að blómabúðir væru orðnar uppiskroppa með blóm. Víða voru blómvendir uppseldir í Ósló í dag. Valgeir Magnússon „Þannig að núna eru örugglega allar blómabúðir að reyna að redda blómum héðan og þaðan. Það eru örugglega einhverjir trukkar að keyra núna í nótt á milli staða bara til að koma blómum á rétta staði svo það sé hægt að selja blóm á morgun. Þjóðin sé kvíðin fyrir framhaldinu Blendnar tilfinningar séu meðal fólks. Bæði sé fólk þakklátt honum og stolt en einnig kvíðið fyrir framhaldinu. „Ég tek líka eftir því að fólk er bæði sorgmætt yfir þessum mikla manni sem er að kveðja og er líka þakklátt fyrir að hann hafi verið konungur vegna þess að fólk var ofsalega stolt af honum. En það er ofsalegur kvíði yfir því hvað taki við. Hákon er vinsæll og hann á eflaust eftir að vera góður konungur. En fólk er bara ennþá talsvert efins um Mette-Marit og það leyfir sér ekki að segja það í dag upphátt.“ Sjá einnig: Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Margir Norðmenn lögðu leið sína að Konungshöllinni í Ósló í dag. Valgeir Magnússon Haraldur tali inn í þjóðarsál Noregs og hafi leiðbeint þjóðinni í ýmsum siðferðismálum. Jafnframt sé hann brautryðjandi í jafnréttismálum. „Þannig að Norðmenn voru ofsalega stoltir af því að vera Norðmenn og hann er tákn þess hvað það er að vera Norðmaður. Þá talar maður og hugsar eins og Haraldur. Sonja konan hans er alveg ofboðslega vinsæl. Þau eru alþýðleg þrátt fyrir að vera konungsfólk. Þau voru bæði líka mikið útivistarfólk, sem er þjóðarsálin. Hann keppti á Ólympíuleikum og hún var fjallgöngukona.“ Hákon krónprins, sonur Haraldar, er ríkisstjóri í fjarveru föður síns en Haraldur hefur verið konungur síðan 1991. Hann og Sonja drottning eiga tvö börn, Hákon krónprins og Mörthu Lovísu prinsessu. Mette-Marit krónprinsessa og eiginkona Hákonar gekkst nýverið undir vel heppnaða lungnaígræðslu en hún greindist með lungnasjúkdóm sem kallast lungnatrefjun fyrir um ári síðan.
Noregur Kóngafólk Íslendingar erlendis Haraldur V Noregskonungur Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira