Erlent

Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum

Hólmfríður Gísladóttir og Samúel Karl Ólason skrifa
Hákon, sonur Haraldar er orðinn konungur.
Hákon, sonur Haraldar er orðinn konungur. Getty/Norska konungsfjölskyldan/Jørgen Gomnæs

Haraldur V. Noregskonungur er látinn, 89 ára að aldri. Hann lést  klukkan 06:35 að staðartíma, eftir níu daga legu á Ríkissjúkrahúsinu í Osló vegna blóðsjúkdóms.

Hákon, sonur Haraldar, er því orðinn konungur. Búið er að lýsa yfir þjóðarsorg í Noregi þar til jarðarförinni lýkur.

Í millitíðinni mun almenningur geta vottað Haraldi virðingu í kapellu konungshallarinnar.

Farið er yfir ævi Haraldar í andlátsfrétt sem birtist á Vísi í morgun.

Vísir fylgdist með þróun mála í í vaktinni hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×