Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Birgir Olgeirsson skrifar 28. ágúst 2026 12:50 Logi Einarsson ráðherra, til vinstri, segir armslengdarsjónarmið eiga sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd, sem hefur sektað Þórarin Hjartarson, til hægri, um hálfa milljón króna. Vilhelm/Einar Logi Einarsson, ráðherra menningar, nýsköpunar og háskólamála, mun ekki hafa afskipti af ákvörðun Fjölmiðlanefndar um að sekta Þórarin Hjartarson, stjórnanda hlaðvarpsins Ein pæling, um 500 þúsund krónur.
Í svari ráðuneytisins við fyrirspurn Vísis segir að stofnanir sem sinni lögbundnu eftirliti verði að starfa samkvæmt þeim lögum og reglum sem gilda hverju sinni. „Ráðherra hefur ekki afskipti af meðferð einstakra mála hjá sjálfstæðum stofnunum. Í tilviki Fjölmiðlanefndar, og vegna eðlis starfsemi fjölmiðla, eiga armslengdarsjónarmið sérstaklega vel við,“ segir í svarinu. Fjölmiðlanefnd sektaði Þórarin fyrir að hafa ekki skráð hlaðvarpið Ein pæling sem fjölmiðil. Hann hefur gagnrýnt ákvörðunina og vísað til þess að ráðuneytið hafi boðað breytingar á fjölmiðlalögum sem snúa að stöðu hlaðvarpa. „Það er búið að koma fram frá stjórnvöldum að hlaðvörp verði ekki skilgreind sem fjölmiðlar en nú er ég sektaður fyrir að skrá mig ekki sem fjölmiðil,“ sagði Þórarinn í samtali við Vísi. Hann segist ekki eiga fyrir sektinni og ætlar að ráðfæra sig við lögmann um næstu skref. Hlaðvörp tekin til umfjöllunar Í svari ráðuneytisins segir jafnframt að Logi hafi lýst þeirri skoðun að fjölmiðlalög þurfi að endurspegla betur ólíkar leiðir til miðlunar efnis. Þar þurfi meðal annars að skerpa á skilgreiningu þess hvað teljist fjölmiðill. Breytingar á fjölmiðlalögum eru fyrirhugaðar á þingmálaskrá vetrarins. Málefni hlaðvarpa verða meðal þess sem tekið verður til umfjöllunar við þá vinnu. Ráðuneytið ætlar að líta til þess hvernig farið er með hlaðvörp í nágrannaríkjunum og verða tillögurnar síðan sendar í hefðbundið samráð. Í svari ráðuneytisins til Vísis í júní sagði að útgangspunktur fyrirhugaðra lagabreytinga væri að hefðbundin hlaðvörp yrðu ekki lengur skráningarskyld.
Fjölmiðlar Hlaðvörp Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Sjá meira